Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 4
VÍKINGUR
Ri ts tjómargrein
SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON
Sjómenn eru ósáttir
/ þessu tölublaði Sjómannablaðsins Víkings er
talsvert skrifað um þátttöku sjómanna í kvóta-
kauþum. Sjaldan eða aldrei hefur efni blaðsins
verið sótt eins ákveðið til sjómannanna sjálfra og
nú. Víkingurinnfór bœði á Suðurnes og til Hafn-
ar í Hornafirði og talaði við fjölda sjómamia og
annarra sem tengjast sjávarútvegi.
Rauði þráðurinn í þeim viðtölum voru kvóta-
kaupin. Pað er greinilegt að sjómenn standa
varnarlausir frammi fyrir þessum vágesti. Svo
virðist sem þátttaka þeirra í kaupum á aflaheim-
ildumfari yfir eins og eldur í sinu.
Ég held að allir sjómenn hafi gott af að lesa
þetta blað sem best. Hér eru rakin dæmi um
hvernig sjómenn hafa þurft að beygja sig undir
þetta óréttlæti, allt vegna atvinnuleysis, sem eitt og
sér er vágestur. Og atvinnuleysið hefur fleiri
skuggahliðar. Þess þekkjast dæmi að sjómenn séu
neyddir til að afsala sér réttindum til að taka laun
í veikindum.
Allir lesendur blaðsins ættu að lesa grein Guð-
jónsA. Kristjánssonar, forseta FFSÍ, en þarrekur
hann raunasögu kvótakerfisins og bendir á aðrar
og betri leiðir.
Þá er í blaðinu athyglisverð grein eftir Guð-
rúnu Helgadóttur alþingismann um upphafið að
útflöggun fiskiskipa frá lslandi.
Farmenn eru í vígahug
Aforðum Jónasar Garðarssonar í viðtali hér í
blaðinu má merkja aðfarmenn eru ekki sáttir. Það
er ástæðulaust að orðlengja hér það sem Jónas
segir í viðtalinu. Það eiga allir að lesa.
Strákar, stöndum saman
Það er ekkert leyndarmál að áskrifendum að
Sjómannablaðinu Víkingi fækkaði á síðasta ári.
Ég, sem þetta skrifa, leyfi mér að fullyrða að
sjaldan eða aldrei hafi efni blaðsins í eins ríkum
mæli verið helgað baráttumálum sjómanna, enda
ekki vanþörf á.
Ef ykkur líka efnistök blaðsins og viljið að það
haldi áfram á þessari braut, þá sýnið stuðning í
verki og gerist áskrifendur. A þessu ári kostar
áskriftin 2.200 krónur, það er allt og sumt.
Við skulum hafa það hugfast að Víkingurinn er
að verða 56 ára gamall. Forverar okkar lögðu allt
kapp á að halda blaðinu úti, og gerðu það lengst
af með sóma. Tökum upp þeirra merki og gerum
allt til að halda útgáfunni áfram, og það með
sóma.
Þótt að sjómönnum kreppi þessa dagana meg-
um við ekki missa móðinn, eflum okkar eigið málg-
agn. ■