Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 82
Framhald af bls. 39
stein Einarsson skipstjóra af þegar
Víkingur haföi samband við skipið.
Hringur var staddur á netaveiðum á
Kötlugrunni, skipverjar nýbúnir að
leggja netin eftir sólarhringsdvöl á
miðunum. Hringur hefur landað
ufsanum í Þorlákshöfn en skipið er
gert út frá Hafnarfirði. Útgerðarað-
ili er Hafnfirðingur hf., í eigu skip-
stjórans Aðalsteins og fleiri aðila.
„Netaveiðin hefur gengið alveg
þokkalega. A hálfum mánuði voru
komin um 100 tonn á land af ufsan-
um. Hér á Kötlugrunninu eru nokk-
uð margir á ufsaveiðum, menn voru
fljótir að koma hingað þegar fréttist
af veiðinni. Það er nú ekki svo bjart á
íslandsmiðum, þannig að maður
skilur þegar menn flykkjast á góð
svæði. Gangurinn er þannig að ef
menn verða einhvers varir einhvers
staðar og fínna eitthvað sem heitir
þorskur þá eru ráðuneytismenn
fljótir til og loka svæðinu," sagði Al-
exander.
Hér er allt snyrtilegt
Alexander var að fara sinn fyrsta
túr sem skipstjóri um borð, en hann
býr á Stokkseyri og var síðast á Frey
ÁR frá Þorlákshöfn. Framundan
var fimm daga túr og horfur á blíð-
skaparveðri á miðunum þrátt fyrir
þoku. „Mér líst vel á mig hérna um
borð. Hér er allt svo snyrtilegt.
Strákarnir hlýða mér ennþá. Þetta
eru allt saman Hafnfirðingar nema
ég og ætli maður fari ekki fljótlega
að heyra Hafnarfjarðarbrandara!
Kokkurinn er góður, enda er það
mikilvægt atriði. Hér eru menn
hraustir vel,“ sagði Alexander.
Alexander var að lokum spurður
hvort hann ætlaði á sjávarútvegssýn-
inguna í Höllinni og kvað hann svo
vera. „Eg fór á sýningar fyrir ein-
hverjum árum síðan. Maður lærir
náttúrulega alltaf eitthvað af öllu.
Sýningarnar væru líklega ekki
haldnar nema eitthvert gagn og
gaman væri af,“ sagði Alexander að
endingu. Eftir afleysingar á Hring lá
leið hans á Fróða ÁR frá Þorláks-
höfn.
Kælikerfi - Frystikerfi
Kæliefni - Varahlutir
HF. KÆLISMIÐJAN
■ FROST ■
AUÐBREKKU 19 PÓSTHÓLF 76 202 KÓPAVOGI SÍMI 9 1 - 46688
JIHII
ASEA BROWN BOVERl
ABB Turbo Systems
BBC forþjöppur - varahlutir
Viðhalds- og viðgerðaþjónusta
Útgerðarmenn
vélstjórar!
Látið sérfróða fagmenn
annast viðhald og
viðgerðir. Erum ávallt
til þjónustu reiðubúnir.
íflyirtlmogw cJto©®®^ & ©®D C=a/K
Vesturgötu 16 - Símar 91-14680 og 13280 - Telefax 26331
82