Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 16
VÍKINGUR
sem ekki leggja upp hjá eigin
vinnslu verði að selja á markaði. í
hinni tillögunni er gert ráð fyrir að
ef útgerðarfyrirtæki verður gjald-
þrota eignist þrotabúið ekki veiði-
heimildirnar, heldur verði þeim
deilt út á ný.
Enn jókst gagnrýnin á
Hafrannsóknastofnun
Sem fyrr segir var mikið deilt á
Hafrannsóknastofnun á fundinum.
Ólafur Björnsson, útgerðarmaður í
Keflavík, sagði að sér þætti nóg um.
Árni Gíslason, fyrrverandi skip-
stjóri, sagði að Hafró héldi því fram
að 200 milljónir einstaklinga væru í
þorskstofninum, en að mati Hafró
væri étinn einn og hálfur milljarður
úr þessum sama stofni, það er marg-
falt fleiri einstaklingar en Hafró seg-
ir að séu í hafinu við Island.
Þarf að rannsaka
Hafrannsóknastofnun?
Gretar Mar Jónsson sagði að árið
1986 hefðu verið 120 skyndilokanir,
en það sem af er þessu ári væri búið
að loka 120 sinnum, jafnoft og á öllu
árinu 1986. Gretar Mar spurði hvort
ekki væri korninn tími til að rann-
saka Hafró og veiðiráðgjöf þeirra
þar. Hann nefndi sem dæmi að síð-
astliðin tólf ár hefði ekki tekist að
veiða þann ýsuafla sem þeir mæltu
með að flotinn veiddi.
„Þessi veiðiráðgjöf stenst ekki og
það skal verða flett ofan af þessu. Ég
sætti mig ekki við að fara á hausinn
vegna þessarar ráðgjafar," sagði
Kristinn Pétursson.
Það voru fleiri fundarmenn á
þeirri skoðun að ekki væri úr vegi að
rannsaka veiðiráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar.
Sendi á ykkur konurnar
Þeir alþingismenn sem sóttu
fundinn fengu það óþvegið.
„Mig undrar hvað margir alþing-
ismenn eru skoðanalausir í þessum
málum, eða þá að þeir fylgja flokks-
forystunni,“ sagði Óskar Karlsson.
„Ef þið takið ekki við ykkur sendi
ég konurnar á ykkur,“ sagði Gunnar
Svavarsson, og beindi orðum sínum
til alþingismannanna.
Gretar Mar Jónsson sagði að öll
urnræða um hvað gera skyldi byggð-
ist á fáfræði og heimsku. Hann sagði
ljóst að við yrðum að veiða okkur út
úr þessum vanda. Kristinn Péturs-
son sagði tíma til kominn að þeir sem
störfuðu í sjávarútvegi tækju málin í
sínar hendur.
Áftu Færeyingar að sækja meira til
að bjarga sér?
Ólafur Björnsson útgerðarmaður
sagði að sér þætti fundarmenn vera
með ómaklega gagnrýni á fiskifræð-
inga. Hann spurði fundarmenn
hvort þeir væru þeirrar skoðunar að
Færeyingar hefðu átt að sækja meira
til að bjarga efnahagsmálum sínum.
Óskar Þórhallsson sagðist hafa
verið stuðningsmaður kvótans og á
sínum tíma viljað að hann yrði settur
á: „Ég vissi ekki þá að hann yrði þessi
óskapnaður sem hann er orðinn.
Það er ekki vinnandi nteð þessu
kerfi.“
„Við verðum að berjast gegn
þessu, róa, ekki stinga þeir okkur
öllum í steininn,“ sagði Kristinn
Gunnarsson.
Gretar Mar Jónsson, formaöur Vísis, í ræðustól.
Þaö var Skipstjóra* og stýrimannafélagið Vísir sem
gekkst fyrir fundinum.
Árni Gíslason sagði mikla ólgu
vera undir niðri: „Þetta endar með
sprengingu, endar með borgara-
styrjöld,“ sagði hann.
Anna Ólafsdóttir Björnsson sagði
ljóst að sjómenn og Hafrannsókna-
stofnun yrðu að vinna betur saman
Tuf'ir manna sóttu fundinn sem haidinn varíGlóöinni íKcflavík. Á myndinni má sjá Benedikt Valsson,
framkvæmdastjóra Farmanna'Ofí fískimannasambandsins, Guöjón A. Kristjánsson, forseta FFSÍ, og
alþingismennina Arna Ragnar Arnason, Salóme Þorkelsdótmr og Steingrím Flermannsson. Þá sjást
einnig verkalýösforingjar á Suðurnesjum, þcirjóhann Geirdal, formaður Verslunarmannafé/ags Suöur-
nesja, og Kristján Gunnarsson, formaöur Verkalýðs' og sjómannafélags Kcflavíkur.
16