Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 55
Stefán Arngrímsson, trillukarl á Höfn:
ÓRÉTTLÁTT EF TRILLURNAR
FÁ AÐ SÆKJA ÓHEFT
SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON
„Það er ekki réttlátt ef krókaleyfis-
bátarnir fá að sækja óheft. Eins verð-
ur það sjálfsmorðssveit ef allir trillu-
karlar þurfa að keppast um hver
getur náð mestum allsherjarkvóta.
Eina leiðin sem ég sé er að okkur
verði leyft að róa, til dæmis í 120
daga á ári, og að við fáum að ráða
hvaða daga við róum,“ sagði Stefán
Arngrímsson, trillukarl á Höfn.
Stefán er ekki óvanur sjónum, þó
svo hann hafí ekki verið með trillu
nema á þriðja ár. Áður en hann fékk
sér trillu var hann meðal eigenda
Vísis SF.
Stefán segir ekki óeðlilegt að sett-
ur verði kvóti á krókabátana. „Eitt-
hvað verður að gera. Ég fæ engan
kvóta. Ég geri mér grein fyrir að það
er ekki sanngjarnt annað en að verði
settur kvóti á okkur. Hér á Höfn er
þessi útgerð stunduð öðruvísi en
víða annars staðar. Hér er bara einn
maður á bát. Þeir bátar sem fiska
mest eru gjarna bátar sem gerðir eru
út á annan hátt en flestir aðrir, það
eru tveir menn eða fleiri á bátunum
ogjafnvel skiptiáhafnir. Þar fyrir ut-
an eru til bátar sem eiga ekki heima í
þessu kerfi, eru miklu stærri. Þeir
bátar fiska yfirleitt mest. Við erum á
þeim allt árið, eftir því hvað hægt er
að róa mikið. I fyrra var ég með um
60 tonn og var tvo og hálfan mánuð
frá veiðum."
Þriggja kúóa fískur er
smár á okkar mælikvarða
Það var slæm tíð í vetur en í sumar
hefur verið góð tíð og hægt að róa
sæmilega mikið. Það er greinilega
minna um físk núna en í fyrra. Það
er greinilegt."
Hrísey er eign samnefnds fyrírtækis, en Borgey er
aðaleigandi þess fyrírtækis. Stefán reiknar ekki
með að Borgeyjarskipin verði seld frá Höfn.
En hvernig hefur þá fiskast í sum-
ar, Stefán?
„Það hefur ekki verið neitt sér-
stakt, komið einn og einn dagur. Það
er líka algengt að við fáum ekki fisk á
sama staðnum tvo daga í röð. Að
okkar mati hefur þetta verið frekar
smár fiskur, en á okkar mælikvarða
er allur fiskur sem er minni en þrjú
kíló smár fiskur."
Nú heyrast trillukarlar oft agn-
úast út í snurvoðina. Skemmir hún
fyrir ykkur?
„Nei, það held ég alls ekki. Það er
alveg ljóst að þeir skemma ekki botn-
inn hér vestur með, því hann er
aldrei eins tvo daga í röð. Þetta er
bara sandur. Það getur verið að þeir
fæli frá einhver kvikindi sem við sjá-
um ekki. Þetta er gott snurvoðar-
svæði. Það hefur oft fiskast vel í
snurvoðina hér.“
Er þetta skemmtileg vinna?
„Já, hún er það. Það eru tarnir og
svo koma rnargir dagar og jafnvel
vikur sem ekkert er.“
Nú ertu einn á sjó, talarðu við
sjálfan þig þegar þú ert ásjónum?
„Nei, en ég tala við múkkann. Svo
hlusta ég mikið á útvarp.“
Ég tel að Borgey
eigi fyrir skuldum
„Menn verða að gera sér grein
fyrir að þetta fyrirtæki má ekki fara.
Ég er handviss um að það myndast
félagsskapur hér til að koma í veg
fyrir að Borgeyjarbátarnir fari héð-
an.“
Mér heyrist menn hér almennt
sáttari við kvótann en maður heyrir
víða annars staðar. Er það vegna
tryggðar við Halldór Ásgrímsson?
„Ég veit það ekki, það eru menn
hér sem eru ekki Halldórsmenn. Af
mörgum vondum kostum getur
einn verið skástur, ætli við lítum ekki
þannig á þetta mál. Við sjáum að ef
Borgey hefði selt allan kvótann í
fyrra væri fyrirtækið skuldlítið, en
ætti eftir skip og vinnslu.
Ég er ekki sammála því að Borgey
sé gjaklþrota. Sverrir Hermannsson
lét hafa eftir sér í fyrra að Borgey
ætti fyrir skuldum. Ég er viss um að
það er rétt. Það er eitt sem ég skil
ekki. Ef Borgey á nánast fyrir skuld-
um, getur þá verið að kröfuhafar
séu tilbúnir að afskrifa helming af
skuldunum? Ég myndi ekki vilja
það.
Það hefur ekki komið neitt tilboð í
skipin. Ástæðan er sú að það vita
allir að þau fara ekki héðan. Það er
sama hvaða tilboð kemur; það verð-
ur gengið inn í það.
Eg held að það hefði þurft að
55