Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 12
VÍKINGUR
Fjölmennur fundur í Keflavík um sjávarútvegsmál:
TEXTI OG MYNDIR: SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Vísir á Suðurnesjum gekkst fyrir
fundi um sjávarútvegsmál 13. ágúst
síðastliðinn. Fundurinn, sem hald-
inn var í Keflavík, var fjölsóttur og
umræðurnar voru miklar, enda stóð
fundurinn í fullar átta klukkustund-
ir með matarhléi.
Þrír höfðu framsögu á fundinum.
Kristinn Pétursson, fiskverkandi á
Bakkafirði, ræddi um niðurstöður
Hafrannsóknastofnunar, Gretar
Mar Jónsson, skipstjóri og formaður
Vísis, ræddi um fiskveiðistjórnunina
og Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, ræddi um nýja fiskveiði-
stjórnun.
Hafró rannsakar og dæmir í sömu
málurn
Kristinn Pétursson ræddi á fund-
inum um túlkun sína á niðurstöðum
Hafrannsóknastofnunar. Hann
sagði ekkert benda til að sú veiðiráð-
gjöf sem Hafró hefur gefið út væri
rétt, hann sagði meðal annars:
„Fyrirliggjandi tillögur eru dómur
um gjaldþrot fjölda einstaklinga og
fyrirtækja. Það þýðir því ekkert
kæruleysi með þau gögn sem liggja
fyrir þessum dómi. Það verður að
ræða livort þau eru rétt eða ekki.“
Þessi skoðun, um að fram ætti að
fara umræða um niðurstöður Haf-
ró, kom fram hjá mörgum öðrum
fundarmönnum. Kristinn Péturs-
son sagði meðal annars að Mann-
réttindadómstóll Evrópu hefði bent
á að sýslumenn gætu ekki bæði
rannsakað mál og dæmt í þeim.
Þetta vildi hann einnig færa yfír á
fiskifræðinga, liann sagði þá bæði
rannsaka fiskstofnana og úrskurða
síðan um eigin niðurstöður.
Erum með belti, axlabönd og snæri
Krístinn Pétursson segist styðjast við gögn Hafrannsóknastofnunar, en eigi að síður kemst hann að allt
annarri niðurstöðu en starfsmenn Hafró.
Kristinn Pétursson sagðist nær
einungis nota gögn frá Hafró, en
þrátt fyrir það væri hann ósamntála
þeim um flestar niðurstöður. Hann
sagði:
„Þetta eru ráðgjafar menntaðir í
kenningum sem ekki eru til. Þeir
STERKT ÁKALL UM
VIÐRÆÐUR UM RÉTTMÆTI
NIÐURSTAÐNA HAFRÓ
12