Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 68
VÍKINGUR
Stýrimannaskólarnir:
DALVÍK ER í SÓKN OG
VESTMANNAEYJAR í VÖRN
ÞORSTEINN BRIEM OG ÞRÖSTUR HARALDSSON
I fyrsta sinn í 26 ára sögu Stýri-
mannaskólans í Vestmannaeyjum
verður ekki kennt á fyrsta stigi í vet-
ur. Svo virðist sem stöðug og góð
aðsókn sé að skólanum á Dalvík.
Talsverð fækkun hefur orðið við
skólann í Reykjavík á síðustu árum.
Reykjavík
Þegar Stýrimannaskólinn í
Reykjavík var settur í 103. sinn 1.
september síðastliðinn höfðu 102
nemendur verið innritaðir í skól-
ann, eða tveimur færri en innritast
höfðu í hann í lok ágúst í fyrra, að
sögn Guðjóns Armanns Eyjólfsson-
ar skólastjóra. Um miðjan þennan
mánuð kemur út saga Stýrimanna-
skólans í Reykjavík eftir Einar S.
Arnalds en ákveðið var að gefa bók-
ina út í tilefni 100 ára afmælis skól-
ans. Bókin er 500 blaðsíður og kost-
ar 8.000 krónur til áskrifenda en
10.000 krónur í bókabúðum.
Guðjón Ármann segir að aðsókn
að Stýrimannaskólanum fari eftir
hvernig ári í sjávarútveginum og að-
sóknin nú mætti vera betri. „I vor
útskrifuðust 68 nemendur frá skól-
anum en árin 1985 og 1986 útskrif-
uðust héðan 180 manns, þegar öld-
ungadeildin er meðtalin. Nú erum
við með 4. stig, eða varðskipadeild, í
fyrsta skipti frá skólaárinu 198788,
því mikill skortur er orðinn á stýri-
mönnum á varðskipin. Á 1. stig hafa
að þessu sinni innritast 42 nemend-
ur en 32 á 2. stig, 21 á 3. stigog 7 á4.
stig, en að meðaltali hafa um 40
manns útskrifastaf 2. stigi og 1015 af
3. stigi,“ segir Guðjón Ármann.
Hann upplýsir að skólinn sé kominn
með mjög fullkomin kennslutæki í
flestum greinum en sárvanti þó tæki
til fjarskiptakennslu. „Við höfum
hins vegar ekkert fé til tækjakaupa
að þessu sinni."
Vestmannaeyjar
Vegna lélegrar aðsóknar verður
einungis kennsla á 2. stigi í Stýri-
mannaskólanum í Vestmannaeyjum
í vetur, en þar hefur alltaf verið
kennt á 1. og 2. stigi þau 26 ár sem
skólinn hefur verið starfræktur.
„Hér verða bara sex nemendur í
vetur, þar af fjórir héðan úr Eyjum,
og þetta er allélegasta aðsókn að
skólanum frá upphafi,“ segir Sigur-
geir Jónsson, kennari við Stýri-
mannaskólann í Eyjum, en þar hófst
skólastarfið 3. september síðastlið-
inn.
„Eg tel ástæðurnar aðallega þær
að aðsóknin hefur verið óvenjumikil
undanfarin 34 ár, þar sent til stóð að
lengja námið, svo er samdráttur í
sjávarútvegi og fiskverðið hefur
lækkað," bætir Sigurgeir við. Hann
segir að þegar aðsókn að skólanum
var mest hafi nemendur verið 35
talsins og oftast hafi fjórðungur til
þriðjungur þeirra verið úr Eyjum.
Margir Austfirðingar hafi stundað
nám við skólann og einnig hafi verið
þar Sunnlendingar, Reykvíkingar
og Vestfírðingar. „Við höfum hins
vegar ekki fengiðNorðlendinga eft-
ir að Stýrimannaskólinn á Dalvík
byrjaði," segir Sigurgeir Jónsson.
Dalvík
Á Dalvík hófst kennsla á 1. stigi
stýrimannanáms árið 1981 og árið
1987 bættist 2. stigið við. Undanfar-
in ár hafa að jafnaði 12 til 15 stýri-
menn útskrifast af 2. stigi á ári og
horfur eru á að svo verði áfram, því
nú hafa 14 manns skráð sig til náms á
1. stigi og á 2. stigi verða 12 til 13
nemendur í vetur.
Stýrimannadeildin á Dalvík hefur
sérstöðu um margt. I fyrsta lagi er
hún hluti af framhaldsdeild sem
rekin er af Dalvíkurskóla og Verk-
menntaskólanum á Akureyri í sam-
einingu. Auk stýrimannanáms er
boðið upp á eins árs almennt fram-
haldsnám og þriggja ára fiskiðnað-
arnám sem er sambærilegt við það
sem Fiskvinnsluskólinn í Hafnar-
firði hefur upp á að bjóða.
I öðru lagi lýtur þessi deild forystu
kvenna, jtví skólastjóri Dalvíkur-
skóla er Þórunn Bergsdóttir og
deildarstjóri framhaldsdeildarinnar
er Hulda Arnsteinsdóttir.
Að sögn Þórunnar er lögð áhersla
á að tengja framhaldsdeildina um-
hverfinu og atvinnulífínu á Dalvík.
Stýrimannadeildin er til húsa í Ráð-
húsi Dalvíkur og fískiðnaðardeildin
á efstu hæð í Kaupfélagshúsinu, en
úr báðum húsum hafa nemendur
útsýni yfír höfnina úr skólastofun-
um. í fyrra var tekin upp sú ný-
breytni að senda nemendur 2. stigs
einn túr á togara undir umsjá skip-
stjóra. Þar eru þeir í læri í brúnni og
fá auk þess tækifæri til að kíkja ofan í
vél. Þetta líkaði vel og verður fram
haldið í vetur. Þá eru Sæbjörgin og
þyrla Gæslunnar fastagestir á Dalvík
og nemendur fá þar tilsögn í örygg-
ismálum og björgunarstörfum.
Dalvíkurskóli starfrækir heima-
vist sent nú orðið þjónar eingöngu
framhaldsdeildinni, en þar er pláss
fyrir 40 nemendur.
68