Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 84
VÍKINGUR
sjóinn á eftir honum. Ég hljóp inn
aftur og sagði Jóa að koma strax. Ég
tók bjarghring um borð og hljóp
niður á bryggjuna, en þetta var við
Kolakranann. Það var nýbúið að
vera kolaskip svo það var ekki geðs-
legt að leggjast í koladrulluna, en ég
henti hringnum og var svo heppinn
að hitta yfir höfuð mannsins.
Ég held að ég hafi ekki komist í
það verra, hún var svo mjó nælon-
snúran á hringnum að ég var hrein-
Fiskseljendur!
Bjóðum upp fisk alla daga kl.
10:30
Útvegum alla þjónustu og
erum ávallt reiðubúnir til
móttöku á fiski.
Látið okkur vita tímanlega
um þátttöku.
íúí
FISKMARKADUR VESTMANNAEYJA HF.
SÍMAR: (08)-13220-13221, og 085-38820
FAX 08-13222
mtMEjkimi
PLASTBATAR
*GEIRIp
með tvöfalda
byrðingnum
Skeifunni 13 sími 91-677660
fax 91-814775
lega að gefast upp við að draga
manninn upp þegar Jói kom. Við
náðum honum samt upp. Það var
greinilegt að hann hafði drukkið
talsvert af sjó.
Ég hljóp upp í bæ og náði að
stöðva lögreglubíl og sagði þeim að
ég hefði bjargað manni og sagði
þeim hvar hann var. Það skipti eng-
um togum að þeir gáfu í botn og
skildu mig eftir.“
Við Grænland íór
frostið í 30 gráður
„Víkingurinn var afbragðssjó-
skip, afbragðssjóskip. Hönnunin á
skipinu var ótrúlega góð, nema það
hefði þurft að vera skuttogari. Stur-
laugur Böðvarsson sagði mér að þeir
hefðu viljað láta byggja skipið sem
skuttogara, en það fékkst víst ekki
leyfi til þess. Það var kalt að vera á
dekkinu við Grænland, frostið fór í
30 gráður, og því hefði þetta verið
allt annað líf ef Víkingur hefði verið
skuttogari þannig að aðgerðin hefði
farið fram undir þiljum. Þessi skip
voru blaut, en hann varði sig samt
vel, hann gerði það.
Framhald af bls. 67
entspróf. Ég er að vona að ég verði í fluginu
það sem ég á eftir.
Flugfélagið heitir Simax, og er í Sviss, það
verður sjúkraflug, fraktflug, farþegaflug og
fleira. Þeir eru með margar tegundir véla og
ég byrja sem aðstoðarflugmaður Twin Otter.
Þetta lofar góðu og ég vona að af verði.“
Fór í skólann fyrir mömmu
Sem fyrr segir hefur Aðalsteinn verið stýri-
maður, en hann hefur lokið námi í fyrsta
bekk Stýrimannaskólans.
„Það var árið 1987 sem mamma sótti um
fyrir mig í Stýrimannaskólanum, ég hafði
ekki ætlað mér að fara í skólann, en gerði það
fyrir hana. Mæður eiga til að segja við okkur
börnin að við séum ekki í skóla fyrir þær, en í
mínu tilfelli var það þannig; ég fór í skólann
fyrir mömmu.
Kvótinn er ágætur út af fyrir sig, en kvóta-
viðskiptin eru svarta hliðin á kvótanum. Það
er ekkert grín þegar útgerðirnar geta verið
að selja sín á milli og látið sjómennina borga
fyrir,“ sagði Aðalsteinn Esjarsson.
84