Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 72
VÍKINGUR
móti tonni. Ég dreg stórlega í efa að
við eigum í dag að ýta of mikið undir
frekari úreldingu, við sjáum að sú
reglugerð sem sett var um full-
vinnsluskip, að vinna allan úrgang
með kostnaði langt umfram þann
ábata sem úr úrgangnum fæst, er
tóm vitleysa og að krefjast úrelding-
ar til að auka nýtingu um borð í
vinnsluskipum gerir ekkert annað
en eyða bátaflotanum í úreldingar-
bálið. Það þjónar ekki hagsmunum
neins, allra síst þeirra sem vinna úr
hráefni í landi. Afleiðingin yrði
aðeins enn minni vinna, bæði til sjós
og lands. Sóknardagafjölda þarf að
ákveða og endurskoða miðað við
aflabrögð. Nægi það ekki þarf teg-
undaþak.
Við sögðum líka að finna þyrfti
tegundaþak fyrir hvern útgerðar-
flokk skipa og aðeins þær tegundir,
sem bundnar væru hámarksþaki,
yrðu stöðvunarbremsa skipsins í
þær físktegundir. Við vildum samt
að útgerð og skipstjóri gætu tals-
verðu ráðið um það hvort þeir færu
fram úr á áður tilteknum viðmiðun-
artímabilum útgerðarflokksins. Það
skerti hinsvegar hámark skipsins
næsta tímabil.
Heildaraflaþak viðkomandi út-
gerðar yrði takmarkað með þorsk-
ígildishámarki ef afli sýndist ætla að
fara verulega fram úr þeim tegund-
um sem þak er á í viðkomandi út-
gerðarflokki. Þetta gæti þýtt að þak
yrði sett á í upphafi árs og síðan af-
numið ef heildarafli væri innan við-
miðunar eða að þakið yrði sett á í lok
árs ef ástæða þætti til að takmarka
afla. Þær tegundir sem ekki yrðu í
fisktegundaþakinu væru útgerðar-
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta viö íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
Þvíekki SKIPAL YFTAN HF.
Berðu okkur saman
við það besta
sem þú þekkir.
Sandblástur
og málun
Hafiö samband
við tæknideild
okkar um hönnun
og föst verðtilboð.
SKIPALYFTAN HF.
VESTMANNAEYJUM
SÍMI 98-11490 FAX 98-11493
72