Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 67
Aðalsteinn Esjarsson:
HÆTTIÁ SJÓNUM OG FER
AÐ FLJÚGA í AFRÍKU
Aðalsteinn Esjarsson, stýrimaður
á Höfn í Hornafirði, er búinn að
korna stakknum fyrir á hillunni.
Hann er hættur til sjós og ætlar að
gerast atvinnuflugmaður í Afríku.
Hann á allt eins von á að fijúga víðar
en þar, jafnvel í Asíu og enn víðar.
Aðalsteinn hefur lengi haft áhuga á
flugi en þeir farkostir sent hann hef-
ur valið sér til fiugs hafa ekki allir
reynst eins vel og til var ætlast.
„Ég var fimm eða sex ára þegar ég
smíðaði mér þyrlu. Hún var fallegri
en SfF, en flugþolið var ekki mikið.
Ég fékk strákana í hverfinu til að
hífa mig upp í snúrustaur og var
búinn að biðja mömmu að nesta
mig. Eftir að strákarnir voru búnir
að hífa mig upp reyndi ég að fljúga
þyrlunni. Eg var einhverjar sekúnd-
ur í loftinu, en þyrlan skemmdist
talsvert og ég gafst upp á henni og
smíðaði síðar úr henni kofa.“
Með „íallhlíP‘ um sig miðjan
„Pabbi hefur alltaf verið í útgerð
og eitt sinn kom hann heim með tólf
manna gúmmíbjörgunarbát. Hann
blés bátínn upp heima í garði og
fyllti hann af vatni. Ég hafði engan
áhuga fyrir þessu, en sá hins vegar
hina fallegustu fallhlíf, sem var rek-
akkerið. Ég batt það um mig og fór
upp á rafstöð og stökk niður. Ég var
heppinn að stórslasa mig ekki. Eftir
þetta varð hlé á flugtilraunum mín-
um.“
Ég er ekki með stúdentspróf
Aðalsteinn tók sólópróf árið 1985
og síðar tók hann frekari próf í
Bandaríkjunum. Nú hefur hann
sett stefnuna á að gerast atvinnu-
flugmaður. „Þessir samningar eru
til fimm eða átta ára. Það verður
flogið víða og á margskonar vélum.
Þar sem ég tók flugmannsréttindi í
Bandaríkjunum eru þau ekki tekin
gild hér heima, og eins skemmir það
fyrir mér að ég er ekki með stúd-
Framhald á bls. 84
UTGERÐARMENN !
Gúmmíklæðum Triplexkefli
og ABAS blakkir fyrir síldar-
og loðnubáta. Gúmmíklæð-
um einnig kefli fyrir netabáta.
Ýmsar gúmmíviðgerðir.
Gúmmísteypa
Þ. Lárusson
67