Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 73
flokkunum frjálsar og aðeins sókn-
ardagafjöldi takmarkaði þær ef
ástæða væri til.
Sérveiðiskip til síldar, loðnu, skel-
fisks og innfjarðarækju, sem hefðu
forgang til veiða á ákveðnu magni
eða vissum svæðum umfram aðra,
væru með skerta sóknardaga og
jafnvel annað þak en sá útgerðar-
flokkur sem þau voru í við almennar
botnfiskveiðar, reynist það nauðsyn-
legt til að jafna afkomu útgerða.
f Tvíhöfðaskýrslunni var sett að
meginmarkmiði að festa skyldi afla-
markið í sessi til frambúðar.
Öll helstu launþegasamtök sjó-
manna, þ.e. Farmanna- og físki-
mannasamband íslands, Sjómanna-
sambandið og Vélstjórafélagið,
sendu þá frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu, sem hljóðar svo:
Framangreind hagsmunasamtök
sjómanna lýsa yfír fullri andstöðu
við framsal á veiðiheimildum, þ.e.
sölu á óveiddum fiski innan gildandi
kerfis um stjórn fiskveiða.
Reynsla síðustu ára hefur leitt til
aukinnar andstöðu samtaka sjó-
manna gagnvart óheftu framsali
veiðiheimilda og nú er svo komið að
mælirinn er fullur. Sjómannasam-
tökin telja að nú sé komið að vendi-
punkti í þessu máli.
Frjálst framsal veiðiheimilda hef-
ur skapað fleiri vandamál en það
hefur leyst. Kjarasamningum físki-
manna, sem byggðir eru í höfuðatr-
iðum á hlutskiptum, er ógnað vegna
þess að fískimenn eru nauðugir látn-
ir taka þátt í kaupum á óveiddum
fiski. Óheft framsal veiðiheimilda
hefur búið til nýja stétt sjómanna og
útgerðarmanna, sem eru ofurseldir
kjörum leiguliðans, þar sem þeim er
skammtaður aðgangur að fiskimið-
unum af þeim sem veiðiréttinn hafa.
Þessari óheillaþróun verður ekki
snúið við nema með algjörri höfnun
á sölu á óveiddum físki.
Sjómannasamtökin telja það ekki
þjóna tilgangi að fjalla um aðra þætti
í tillögum þeirrar nefndar, sem fjall-
ar um mótun sjávarútvegsstefnu,
nema fyrir liggi að öll viðskipti með
veiðiheimildir verði bönnuð.
Sjónarmið sjómanna virt að vettugi
Á lokafundi Tvíhöfðanefndar-
innar, áður en skýrslan var aflient
sjávarútvegsráðherra, var eftir því
gengið við Tvíhöfðanefndina hvort
tillit yrði tekið til mótmæla sjómanna
um frjálsa framsalið í lokabréfi
nefndarinnar. Svar forystumanna
Tvíhöfðanefndar var að það yrði
Árni Gíslason talaði á fundinum í Kcflavík. Af
öllum þcim scm gagnrýndi Hafrannsóknastofnun,
var Ami harðastur í sinni gagnrýni.
ekki gert. Þó hafði verið breytt ýmsu
í áherslum eins og því að fjölga ekki
fisktegundum innan kvótakerfis.
Bæði Landssamband smábátaeig-
enda og Verkamannasambandið
tóku undir sjónarmið sjómanna
varðandi kvótabraskið.
Sjómannasamtökin lýstu þá yfir
algjörri andstöðu sinni við vinnu-
brögð og áframhald og framkvæmd
kvótakerfísins.
Nýlega hafa forystumenn FFSI,
SSÍ og VSFÍ allir ítrekað afstöðu
sína og lýst því yfir að verði reynt að
viðhalda kvótabraskinu þá verði
hörkuátök við sjómenn á komandi
hausti.
Eg held að það sé kominn tími til
fyrir ráðamenn þjóðarinnar að taka
það alvarlega, sem sjómenn allt í
kringum land hafa verið að segja
undanfarin misseri. Fiskveiðikerfí,
sem sett er á í algjörri andstöðu við
þá sem eftir því eiga að vinna, virkar
ekki; þar dugar hvorki tvíhöfða- né
þríhöfðaþurs til fiskveiða.
FFSÍ hefur ekki lýst afstöðu sinni
til helstu markmiða í tvíhöfðaskýrsl-
unni, þótt vitað sé að við viljum ekki
fjölga físktegundum í kvótakerfi.
Miklu nær hefði verið að Tvíhöfða-
nefndin hefði lagt til að þær fiskteg-
undir, sem ekki nást ár eftir ár, færu
út úr kerfinu. Það er líka ljóst að
stefnumörkun FFSÍ frá 35. þingi
1991 leggur til sóknarkerfi á smá-
báta og ntiðað við núverandi þorsk-
afla fyrir næsta fískveiðiárþarf að
SKOÐUN OG VIÐGERÐIR GÚMMÍBÁTA.
EINNIG SKOÐUN OG VIÐGERÐ
BJARGBÚNINGA.
Gúmmíbátaþjónustan
Eyjaslóð 9 ■ Örfyrisey • sími 91-14010 • fax 91-624010.
73