Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 45
Borgar segir að ekki alls fyrir löngu
hafí kvótakaup ekki tíðkast, en nú sé
þetta að verða allsráðandi.
„Það eru útgerðir hér sem standa vel
að öllum þessum málum. Þar vil ég
nefna Eskeyjarútgerðina, útgerðina á
Sigurði Ólafssyni og Skinney."
Nú stendur til að selja tvö af skipum
Borgeyjar. Ef þau verða seld héðan
versnar atvinnuástand sjómanna enn
frekar. Eru menn ekki kvíðnir þess
vegna?
„Jú, það hlýtur að vera. Annars er
erfitt að selja báta og því óvíst hvort
þeim tekst að selja bátana frá sér.“
Við sjómennirnir breytum þessu ekki
einir og sér
Okkur þykir að það fólk, sem hefur
valist til forystu fyrir okkur sjómenn,
verði að gera eitthvað í málunum.
Þegar við vorum reknir af Haukafell-
inu var ekkert gert, þrátt fyrir að við
heimamenn hefðum verið settir í land
og aðkomumenn kæmu í okkar stað.
Það virðist enginn ætla að gera neitt í
þessu og einir og sér áorkum við engu,
sjómennirnir einir."
Með fullan bát af fiski en engan
kvóta
Á vertíðinni í vetur vorum við að
fiska við Snæfellsnesið. Við fylltum
bátinn á tveimur sólarhringum. Þegar
báturinn var orðinn fullur af fiski vissi
kallinn ekkert hvert hann átti að fara,
við áttum engan kvóta. Hann hringdi
um allt land og að lokum seldum við
hjá Haraldi Böðvarssyni á Akranesi
fyrir 47 krónur kílóið. Þorskverðið á
mörkuðunum var til muna hærra,
þannig að þetta var ekkert verð.
Þrátt fyrir þetta var farið aftur á
sama stað og eftir um einn sólarhring
var báturinn aftur fullur af fiski, rétt
um 50 tonn. Þá hófst það sama aftur.
Kallinn hringdi um allt og að lokum
keypti Borgey aflann, en verðið var þá
45 krónur. Þetta er ein útgáfan enn.
Menn fiska, þrátt fyrir að eiga engan
kvóta, og treysta síðan á Guð og lukk-
una um að losna við fiskinn. Þetta er
samt betra en að binda bátinn við
bryggju. Það eru einkennileg vinnu-
brögð þegar menn róa upp á þetta;
fiska í bátana og vita síðan ekkert hvort
þeir losna við fiskinn eða á hvaða
verði,“ sagði Borgar Antonsson.
KV|j»TABANKINN
Annast viðskipti
með veiðiheimildir
Látið fagmann
vinna verkið!
Sími: 91-656412
Fax: 91-656372
Jón Karlsson
HÁÞRÝST VÖKVAKERFI
SÉRHSFD ÞJÓNUSTA
Við framleiðum:
Vindur og dælustöðvar
Við eigum á lager eða útvegum með
skömmum fyrirvara nánast alla hluti
fyrir háþrýst vökvakerfi.
FYRIR FÆRIBAISIDAKERFI:
Mjög hljóðlátar þrýstistýrðar
spjaldadælur, Orbit mótora,
þrýsistýrða magnloka-ryðfría,
kúluloka-ryðfría.
FYIRVIIMDUROG KRANA:
Stirhpilmótora með innbyggðri
diskabremsu og fríhjólun,
Orbit mótora með gír og bremsu,
háþrýstar spjaldadælur, tannhjóla-
dælur, stjórnloka-fjarstýrða með
rafmagni, tjakka, öryggisloka,
rafmagnskúplingar, síur,
áfyllistúta, hæðarglös o.fl.
Hönnun kerfa - ráðgjöf - þjónusta
Vökvatæki hf
Bygggörðum 5,170 Seltjarnarnesi,
sími 91 -612209, fax 91 -612226.
45