Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 40
VÍKINGUR
Á KARFAVEIÐUM FYRIR ÞÝSKALANDSMARKAÐ
„Við missum af sýningunni,“ segir Brynjólfur
Garðarsson, skipsfjóri Dala-Rafns
HH
HellyHansen
LIFTRYGGING
Skeifunni 13
sími 91 -677660 - fax 91 -814775
„Við erum staddir á Skaftárdjúpi
suður af landinu að reyna að fínna
einhvern karfa til að selja í Þýska-
landi. Veiðin gengur hægt,“ sagði
Brynjólfur Garðarsson skipstjóri
um borð í togaranum Dala-Rafni frá
Vestmannaeyjum. Skipið var þá
ennþá að veiða af kvóta síðasta árs,
sem gekk frekar illa að ganga á.
Þórður Rafn í Vestmannaeyjum
gerir út Dala-Rafn eftir að Vinnslu-
stöðin hf. seldi skipið sl. vor. Brynj-
ólfur var áður skipstjóri á Breka VE,
togara í eigu Vinnslustöðvarinnar.
Brynjólfur var að fara sinn fyrsta
veiðitúr eftir langt sumarfrí í landi
og líkaði vel að vera byrjaður aftur.
Það ec ýmislegt að sjá
Dala-Rafn seldi síðast í Þýskalandi
íjúlí sl. og skipið átti söludag í Brem-
erhaven um svipað leyti og sjávar-
útvegssýningin í Laugardalshöll
hófst. „Það er því ljóst að við missum
7wþjom.
SÆNSK
GÆÐANÆRFÖT
FYRIR • ALLA- FJÖLSKYLDUNA
-> Stinga ekki
Úr fínustu merinóull
jMjög slitsterk
® Má þvo viö 60°C
Skátabúðin, Útillf, Hestamaöurinn,
öll helstu kaupfélög, veiöafæraversl.,
sportvöruversl. Eyfjörð o.fl.
af sýningunni í ár. Það er misjafnt
hér um borð hvað menn gráta það,
en mér finnst sjálfsagt að fylgjast
með þróun mála í þessum iðnaði. Ég
hef komist á flestar sýningarnar til
þessa. Það er ýmislegt að sjá. Menn
fara til að spekúlera hvað þeir geta
nýtt sér það sem er sýnt,“ sagði skip-
stjórinn.
Um borð í Dala-Rafni eru fimm-
tán fílefldir sjómenn, allir úr Eyjum,
ef Brynjólfur er undanskilinn, en
hann býr í Reykjavík. Hann er fædd-
ur á Isafirði en uppalinn í Keflavík.
„Ég er því góð blanda," sagði Brynj-
ólfur sem hefur verið til sjós síðustu
tvo áratugi. Skipstjóri hefur Brynj-
ólfur verið síðan í vor, þegar hann
fór frá Breka sem stýrimaður yfir á
Dala-Rafn.
FLOTINN EROF STÓR
segir Einar
Hálfdánarson,
skipstjóri á togaranum
Sveini Jónssyni KE frá
Sandgerði
Þegar haft var sam-
band við togarann Svein
Jónsson KE frá Sand-
gerði varð fyrir svörum
sjálfur skipstjórinn, Einar
Hálfdánarson. Skipið var
þá statt á Eldeyjarbanka á
leið frá Sandgerði til
veiða á Fjallasvæðinu, eða
„a.m.k. athuga þar að-
stæður“, eins og Einar
komst að orði. Aðspurð-
ur sagði Einar að illa
hefði gengið að fiska og
skipið ekki átt í erfiðleik-
um með að láta kvótann
duga út kvótaárið, en
þegar samtalið við Einar
fór fram voru fimm dag-
ar eftir af síðasta kvótaári.
„Þetta er lélegasta
sumar sem ég man eftir,“
sagði Einar um veiðina en
hann hefur verið til sjós
frá fimmtán ára aldri, eða
í 32 ár, þar af skipstjóri í
níu ár. Sveinn Jónsson
KE er annar tveggja ísfís-
40