Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Page 28
VÍKINGUR
Höfn í Hornafirði:
ÓVISSAN UM BORGEY OG
ÞÁTTTAKA í KVÓTAKAUPUM
EFST í HUGA SJÓMANNA
andstaðan við kvótann virðist vera minni meðal hornfirskra sjómanna
en sjómanna víða annars staðar á landinu
TEXTI OG MYNDIR: SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON
Á Höfn í Hornafirði eru blikur á
lofti í atvinnnulífinu. Stærsta sjávar-
útvegsfyrirtæki staðarins, Borgey
hf., er með greiðslustöðvun og enn
er óvíst hver framtíð fyrirtækisins
verður. Skuldirnar eru tæplega einn
og hálfur milljarður og dagljóst að
ef ekki tekst að ná fram mjög mikl-
um breytingum blasir ekkert annað
en gjaldþrot við þessum risa í at-
vinnulífinu á Höfn.
Víða um land eru sjómenn and-
vígir núverandi kvótakerfi. Á Höfn
eru uppi aðrar skoðanir. Þar virðast
flestir vera sammála um að hafa
kvótakerfið áfram, þó eru margir
andvígir þeim frjálsu viðskiptum
sem líðkast með aflaheimildir. „Af
mörgum slæmum kostum getur
einn verið skástur," sagði einn sjó-
mannanna.
Það er kannski ekki nema von að
hluti sjómanna á Höfn sé á móti
frjálsum viðskiptum með aflaheim-
ildir. Þátttaka sjómanna á Höfn í
kvótakaupum hefur breiðst út eins
og eldur í sinu. Sem dæmi má nefna
að einn bátanna sem gerðir eru út
frá Höfn, Sigurður Lárusson, rúm-
lega 100 tonna bátur, hefur aðeins
12 tonna kvóta. Þeir sjómenn sem
eru ráðnir á bátinn eru ráðnir upp á
að taka þátt í kvótakaupum.
Á Höfn hafa sjómenn verið settir í
land fyrir að neita að taka þátt í
kvótakaupum. Þetta fékkst staðfest
þegar Sjómannablaðið Víkingur var
á Höfn fyrir fáeinum dögum.
Hér á eftir fara viðtöl og greinar
úr ferðinni.
28