Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Page 29
VÍKINGUR Halldór Árnason, framkvæmdastjóri Borgeyjar: SPURNING HVAÐ MENN EIGA AÐ SJÁ FYRIR SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON „Borgey sameinaðist útgerðarfyr- irtækinu Samstöðu 1. janúar 1992. Þá gerði fyrirtækið út tvo togara og tvo báta og átti einnig hlut í útgerð- arfyrirtækinu Hrísey, sem gerir út bátinn Hrísey. Borgey var dótturfyrirtæki Kaup- félagsins. Það var ákveðið að Borgey tæki yfir allan rekstur Kaupfélagsins á sviði sjávarútvegs. Sú skipun komst á 1. júní 1992.“ Á þeim tíma, sem er liðinn frá því Borgey tók yfir allan þennan rekst- ur, hefur gengið afar illa og það má nánast fullyrða að allt það fé, sem var lagt til fyrirtækisins, sé glatað, ekki rétt? „Borgey var hleypt af stokkunum sem mjög skuldsettu fyrirtæki. Allar ytri aðstæður hafa verið mjög óhag- stæðar þennan tíma, ekki síst fyrir jafnskuldsett fyrirtæki og Borgey. Það varð niðurstaða stjórnarinnar í lok maí að biðja um greiðslustöðvun til að freista þess að endurskipu- leggja rekstur og Ijárhag fyrirtækis- ins. Greiðslustöðvunin hefur verið framlengd til 15. september. Þeirri vinnu, sem við höfum verið í, er að ljúka núna. Við ætlum að fara út í miklar aðgerðir, fimmþættar að- gerðir, til að koma rekstrinum á traustan grundvöll." Eignasala, nauðarsamningar, skuldbreytingar og aukið hlutafé „I fyrsta lagi ætlum við að selja verulegar eignir, bæði skip og fast- eignir á landi. Við munum leita nauðasamninga við kröfuhafa og niðurfellingu skulda, því fyrirtækið ræður ekki við skuldirnar sem á því hvfla. Þriðji þátturinn er sá að við mun- um leita eftir skuldbreytingum á þeim skuldum sem eftir verða, það er þung greiðslubyrði á fyrirtækinu. I fjórða lagi erum við að endur- skipuleggja reksturinn. Bókhaldið sýnir að þar hefur náðst töluverður árangur. I fimmta lagi munum við leitast við að fá inn nýtt hlutafé. Þú ert að tala um verulegar breyt- ingar. Nauðasamninga og skuld- breytingar, verulega eignasölu og nýtt hlutafé. Þetta þýðir meðal ann- ars, ef þetta gengur allt upp, að Borgey verði mun minna fyrirtæki eftir aðgerðirnar. „Já, við ætlum að draga okkur svo til alveg út úr útgerðinni. Við verð- um að eiga skip til að geta átt kvóta og því munum við ekki selja öll skip- in.“ Þið eruð þegar með tvö skip til sölu. Hafa heimamenn eða aðilar ut- an Hafnar sýnt áhuga á kaupum? „Jú, það er unnið að sölu á skipun- um og það eru menn utan héraðs sem við höfum verið að ræða við. Ég get ekki sagt hverjir þeir aðilar eru.“ Hvað fylgir mikill kvóti þessum tveimur skipum? „Það fer eftir því hvernig við selj- um þau. Stokksnesið ætlum við að selja með þeim kvótum sem á því eru, en það eru rúmlega 1.400 tonna Halldór Árnason sefíist vera vongóður um að takast megi að bjarga Borgey frá gjaldroti, cn fyrirsjáanlegt, ef það tekst, að fyrirtækið mun þurfa að draga saman seglin. 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.