Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Blaðsíða 32
Ykkar útgerðarmaður, Ásgrímur Halldórsson, segir mér að hann sé búinn að kaupa kvóta fyrir 80 millj- ónir króna frá árinu 1990. „Það er eflaust rétt hjá honum,“ sagði Grétar. „Sagði hann þér þá ekki líka að allur sá kvóti, sem hann er búinn að kaupa frá 1990, er horf- inn?“ sagði Grétar. Freyr er nýhættur á humri, en eru uppgrip í humrinum? „Nei, það er af sem áður var. Það eru netin sem skila mestu tekjun- um,“ sagði Ægir. Freyr á að fara á rækju sem verður landað á Eskifirði. Þeireru búnir að vera á línu, netum, humri, fiskitrolli og fara nú á rækju, allt á einu og sama árinu. Meira um kvótann drengir. Aðrir sjómenn kvarta, en ekki þið. „Þessi væll er kominn frá Suður- nesjamönnunum. Það er ekkert öðruvísi. Þeir eru búnir að kvarta í mörg ár. Reyndar verður að segja eins og er að þeir eru sennilega mestu leiguliðarnir af öllum. Ég get sagt þér að það var bátur héðan að fiska fyrir Norðlendinga. Þeim var sagt að koma einungis með tveggja til fjögurra kílóa fisk. Það gekk ekki upp, þar sem hér er það stór fiskur. Það er erfitt að fá tveggja kílóa fisk," sagði Grétar. „Það er nú samt meira um smáfisk nú en áður,“ sagði Ægir. „Þannig að það er eitthvað um fisk sem er að vaxa, ef hann fær þá að vaxa eitthvað. Það er búið að loka stórum svæðum fyrir 155 millimetra möskvum, en á sama tíma er allt op- ið fyrir 135 millimetra möskva. Snurvoðarbátarnir eru að koma í land með 30 til 40 tonn eftir tvo daga, á sama tíma og þeir með stærri möskvana eru grænir fyrir utan. Þetta er algjört rugl,“ sagði Grétar. „Þeir eru með það mikið af tógum að það þýðir ekkert fyrir þá að kasta tvisvar á sama blettinn, það er bara eyðimörk eftir kastið,“ bætir Grétar við og hlær. En drengir, því verður ekki á móti mælt að eftir að þátttaka sjómanna í kvótakaupum kom til hafa margir sjómenn þurft að sætta sig við að vera skrúfaðir mörg ár til baka í launum. Þeir sem hafa sloppið við kvótakaupin eru ekkert vel haldnir heldur, kvótinn hefur minnkað það mikið. „Ég er með nákvæmlega sömu krónutölu síðustu íjögur ár. Það sér hver maður að þetta er ekki sniðugt. Við höfum alveg sloppið við kvóta- kaup til þessa. Samt er ég ekki á lé- legum launum, þú ættir að tala við strákana sem eru með einn hlut. Þeir geta kvartað," sagði Grétar. „Ég þarf ekkert að kvarta, ég kemst ágætlega af,“ sagði Grétar Vilbergs- son, skipstjóri á Frey SF, að lokum. Guðmundur Erlendsson, netamaður á Hrísey: EKKERT ANNAÐ AÐ GERA EN TAKA ÞÁTT í KVÓTAKAUPUM „Satt best að segja veit ég ekki hvort okkur er ætlað að taka þátt í kvótakaupum hér á Hríseynni, ég hef ekki kannað það,“ sagði Guð- mundur Erlendsson, netamaður á Hrísey. Guðmundur að gera trollið klárt. Guðmundur er nýráðinn á Hrís- eyna. „Ef það er ætlunin að við borgum fyrir kvótann, þá verðum við bara að gera það. Það er ekki um neilt annað að ræða. Ef valið stendur milli þess og að vera í landi, þá vil ég frekar borga í kvótanum. Það er betra að vera á lágum launum á sjó en engum í landi," sagði Guðmundur Erlends- son. Grétar sagðist taka sig vel út í rammanum. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.