Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 41
SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN ktogara sem Miðnes hf. í Sandgerði gerir út. Sveinn Jónsson KE var með 3.200 tonna kvóta á veiðiárinu, sem lauk 1. september sl. Þegar Einar var spurð- ur um kvóta þessa veiðiárs var fátt um svör, hann sagðist hafa litið í fljótheitum á tölurnar en verið fljót- ur að loka sjávarútvegsblaði Mogg- ans, Verinu. „Ég hafði engan áhuga á að skoða þessar tölur nánar,“ sagði Einar og var greinilega óhress með kvóta- skerðinguna. En skipstjórinn var engu að síður raunsær: „Þetta er sjálfsagt eðlileg afleiðing af því sem á undan er gengið. Það eru ákveðnir menn sem stjórna þessu og þeir verða að fá að gera það. Flotinn er einfaldlega alltof stór. Það eru fleiri hópar of stórir en krókaleyfisbátar. Flotinn er bara einum of kraftmikill, það er málið. Við svona rétt náum að teygja á karfakvótanum rnilli veiði- tímabila með því að fara í land í hverri viku. Það er búið að vera þannig hjá okkur í eitt ár að vera fimm daga á sjó í einu og fara síðan í land.“ Einar var að endingu spurður hvort hann hefði sótt sjávarútvegs- sýningarnar í Laugardalshöll og hann kvað svo vera. „Ég held að ég hafi farið á allar sýningarnar og lík- að vel. Það er gaman og fróðlegt að fylgjast með nýjungum í sjávarút- vegi, þótt það sé kannski erfitt að elta þær út í ystu æsar þegar maður er á tuttugu ára gömlu skipi. Það svarar varla kostnaði. Ætli maður kíki ekki á sýninguna núna líka,“ sagði Einar Hálfdánarson skipstjóri að lokum við blaðamann Víkings. NORÐMENN ERU ENGAR HEILAGARKÝR rætt við Arna Einarsson á Höfðavík AK um Smuguveiðar og fleira „Við erum staddir hérna á Kolluál að reyna að ná þeim gula. Það er búið að vera tregfiskerí þótt nokkur skip hafi komist í gott hérna,“ sagði skipstjórinn í brúnni á togaranum Höfðavík AK frá Akranesi, Árni Einarsson, þegar Víkingur sló á þráðinn á haf út, rétt áður en síðasta kvótaár rann út. Haförninn hf. á Akranesi gerir Höfðavíkina út auk togarans Sæfara AK. Höfðavíkin var þá búin með kvóta og skipið byrjað að skrapa upp af kvóta næsta veiðitímabils. Að sögn Árna var það fyrsti veiðitúrinn en stefnan sett á að vera í landi 1. sept- ember. Árni hafði ekki séð nýjustu kvótaúthlutun fyrir Höfðavík en hann reiknaði með einhverri skerð- ingu. Þó væri hún ekki mikil þar sem togarinn er aðallega gerður út á karfa en ekki þorsk. Hefur farið á allar sýningar Aðspurður sagðist Árni hafa farið á allar stóru sjávarútvegssýningarn- ar í Laugardalshöll. „Það eru svo miklar og örar breyt- ingar í sjávarútveginum að maður verður að fylgjast með nýjungun- um. Ég fæ mikið út úr því að fara á þessar sýningar. Maður sér það nýj- asta sem er á döfinni og þetta er allt saman mjögjákvætt. Flotinn okkar er orðinn mjög tæknivæddur," sagði Árni og átti von á að mæta á sýning- una í ár, a.m.k. ætlaði hann að stíla upp á að vera í landi um svipað leyti. Norðmenn ættu að taka til heima hjá sér Árni sagði að veiðar íslendinga í Smugunni væru hið besta mál. „Mér finnst sjálfsagt að við sækjum okkar rétt. Réttur okkar þarna er ótvíræður. Norðmenn eiga engan andskotans rétt á að veiða á þessu svæði. Þetta er fyrir utan 200 mílurnar þeirra. Eins og á flestum sviðum er þetta sami yfir- gangurinn í Norðmönnum. Þeir eru sennilega búnir að gleyma að þeir rányrktu fyrir okkur síldina til fjölda ára á Islandsmiðum og inni á fjörð- um. Síðan drápu þeir smáfiska í fjörð- unum hjá sér þannig að þeir ættu að taka til hjá sér í heimahögunum áður en þeir fara annað.“ Höfðavíkurskipstjórinn sagði að ís- lensk stjórnvöld hefðu átt að vera beinskeyttari í viðræðum sínum við Norðmenn um Smuguveiðarnar. „Þeir hefðu átt að láta Norðmenn vita betur að við værum til. Annars var Jón Baldvin ágætur. Norðmenn eru engar heilagar kýr og við eigum bara að láta þá finna fyrir því.“ Fótboltafíklar um borð Árni er með fimmtán fíleflda Skagamenn í áhöfn Höfðavíkur og að sjálfsögðu allt saman „fótbolta- fíkla“. Þegar spjallið við Árna fór frarn voru fáeinir dagar í bikarúr- slitaleik Skagamanna og Keflvíkinga og horfur á að áhöfnin yrði á sjó þegar leikurinn færi fram. „Við er- um eiginlega búnir að sjá úrslitaleik- inn,“ sagði Árni og átti við leik Skagamanna í Vesturbænum gegn KR-ingum. Já, þeir eru kokhraustir á Skaganum! ÞAÐERGAMAN Á ÞESSUM SÝNINGUM Sveinn Jónsson, stýrimaður á Júlla Dan GK, verður fyrir svörum Netabáturinn stóri, Júlli Dan frá Grindavík, var á leiðinni á ufsaveið- ar í Kötlugrunni þegar Víkingur sló á þráðinn um borð síðasta ágúst- kvöldið í ár. Þar sem „kallinn", Erl- ing Kristjánsson, lá sofandi í kojunni varð Sveinn Arason, fyrsti stýrimað- ur, fyrir svörum. Júlli Dan var þá staddur út af Selvogi í sínum fjórða ufsaveiðitúr. Að sögn Sveins var ufsaveiðin örlítið að glæðast eftir ró- lega byrjun í ágústmánuði. Um 110 tonn voru komin á land. „Það þarf svo mikinn pening til að hala eitt- hvað inn, ufsinn er svo verðlítill," sagði Sveinn. Bjargþór hf. í Grindavík gerir Júlla Dan út. Báturinn er 243 tonn að stærð og telst með stærri netabát- um á landinu. Ellefu manns eru í áhöfninni, flestir búsettir í Grinda- Framhald á bls. 51 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.