Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Síða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Síða 43
synlegt að geta þess að fiskmjöl er ekki “einsleit'* vara, m.ö.o. er um að ræða ólíka vöru eftir eiginleikum og gæðum. Eiginleikarnir ráðast fyrst og fremst af próteininnihaldi mjöls- ins, sem getur legið á bilinu 64% til 72%. íslenska loðnumjölið er al- gengast um 70%. Þá ber að nefna misjafnt innihald ýmiss konar snefil- efna og lit á mjöli. Eiginleikar og gæði ráðast síðan m.a. af fram- leiðsluaðférð (þurrkunaraðferð o.s.frv.) og tegund og ferskleika hrá- efnis. Heims verslun Framboð fiskmjöls á heimsmark- aði hefur verið um 3 milljónir tonna á ári, sem er rúmlega 50% af heims- framleiðslu. Þessar tölur gefa til kynna að hlutdeild íslendinga íþess- um tiltekna heimsmarkaði er innan við 10%, sem leiðir líkur að því að við höfum takmörkuð áhrif á hina al- mennu verðlagningu á þessurn markaði. Helstu innflytjendur fiskmjöls og -lýsis var að finna í Vestur-Evrópu, þar til fyrir skömmu, að lönd í Aust- ur-Asíu tóku forystuna á þessum vettvangi. T.d. er reiknað með að Kína eitt og sér hafi flutt inn 1/6 af heimsútflutningi árið 1991. Vestur- Evrópa er enn mikilvægasti markað- ur íslendinga fyrir bræðsluafurðir. Horfur um framboð af fískmjöli og -lýsi á heimsmarkaði, hvort sem litið er til skemmri eða lengri tíma, eru ávallt óvissu undirorpnar. Þó er búist við að framboð frá íslandi verði meira en í meðalári. Upplýs- ingar frá Perú og Chile benda til að framboð frá þessum löndum fari minnkandi. Einnig má geta þess að fiskmjöls- og lýsisframleiðendur í Suður-Ameríku hafa staðið gagn- vart alvarlegum vanda vegna sal- monellusýkingar í afurðum. Þá er reiknað með að loðnuveiði Norð- manna í Barentshafi verði í lág- marki næsta vetur. Með hliðsjón af þessu er ekki loku fyrir það skotið að framboð bræðsluafurða á heimsm- arkaði fari minnkandi á næstunni. Staðkvæmd Þegar talað er um staðkvæmd tveggja vara er átt við að notkun á einni tegund vöru geti komið í stað- inn fyrir notkun á annarri tegund. Dæmi um staðkvæmd er fiskur og kjöt í innkaupum neytenda. Það sem ræður innkaupum neytandans, að því gefnu að hann taki skynsamlega ákvörðun, er verðhlutfallið milli þessara vörutegunda, eða öllu frem- ur breyting á verðhlutfallinu. Ríkjandi er staðkvæmd milli fisk- mjöls- og lýsis annars vegar og mjöls og lýsis sem unnið er úr jurtum hins vegar. Sojabaunir, maís og aðrar jurtir eru uppistaðan í skepnufóðri víðsvegar umheim. Heimsfram- leiðslan á mjöli framleiddu úr jurt- um var um 133 milljónir tonna, þ.a. var sojamjölið tæplega 70 milljónir tonna árið 1991. Það sem greinir á milli fisk- og jurtamjöls er m.a. mis- munandi próteininnihald. T.d. er innihaldið í sojamjöli 44—46%, auk þess sem fiskmjölið inniheldur ýmis aukaefni sem örva vöxt fóðurdýra, sem útskýrir, a.m.k. að hluta, hvers vegna markaðsverð á hverja prót- eineiningu fiskmjöls er mun hærra en jurtamjöls. Rannsóknir um staðkvæmd milli fiskmjöls og sojamjöls á markaði í Bandaríkjunum sýna að verð á fisk- mjöli er ákvarðað að miklu leyti af verði sojamjöls.2’ Á grundvelli þess- arar rannsóknar má ætla að svipað eigi sér stað í Evrópu og álykta að ákveðið verðhlutfall sé til staðar milli fiskmjöls og sojamjöls sem leiði af sér jafnvægi milli markaða. Það IceMac fiskvinnsluvélar hf. Eini söluaðilinn með notaðar fiskvinnsluvélar IceMac fiskvinnsluvélar hf. er eina fyrirtækið á íslandi sem versl- ar með notaðar fiskvinnsluvélar. Fyrirtækið var stofnað í nóv- ember 1991 undir nafninu Sölu- þjónusta atvinnuveganna. í sept- ember ári síðar var fyrirtækið end- urskipulagt, nafni þess breytt í IceMac fiskvinnsluvélar og jjað gert að hlutafélagi. Markmið fyrirtækisins er að bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum notaðar vélar, varahluti og annan búnað á hagstæðu verði. Auk þess að kaupa og selja tekur IceMac vél- ar og búnað í umboðssölu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. IceMac hefur yfir 1.500 fer- metra sýningarsal í Faxaskála 2. Þar er til sýnis og sölu úrval not- aðra véla og tækja til fiskvinnslu. Nýverið tóku IceMac fisk- vinnsluvélar hf. að sér umboð fyrir Cretel-roðvélar, Stava-flokkara og saltdreifibúnað. Þessar vélar verða kynntar á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll. 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.