Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Qupperneq 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Qupperneq 47
borðuðum allir saman,plássið leyfði ekki annað. Þegar við vorum að borða hafði Sigurður á orði við hér- aðslækninn að hann hefði fundið gamla konu sem var með berkla- smit. Hann sagði að það þyrfti að senda konuna strax á Kristnes eða Vífilsstaði og var harðorður við hér- aðslækninn, Sigurði þótti að læknir- inn hefði átt að vera búinn að sjá að gamla konan væri veik. „Hún var alltaf svo hraustleg," svaraði læknir- inn. Hún var ekkert nema beina- grindin, minnti helst á Gandhi. Smitberar voru pikkaðir svona út og ég held að þetta verk hafi verið eitt stærsta skrefíð í að við komumst fyrir vind með berklana. Þessir smærri staðir voru þannig að ef ekk- ert hefði verið að gert gat fólk verið þarna berklasmitað árum saman." 60 tonna trépungur sendur hálfan hringinn „Það gat verið einkennilegt að ferðast með þetta fólk á árabátum, en ég er hreykinn af að hafa tekið þátt í þessu. Við sem unnum við þetta voru gegnumlýstir og skoðaðir til að ganga úr skugga um að við værum ekki smitaðir. Ég man að eitt sinn reri ég í land með tvær systur og móður þeirra. Þær vildu endilega að ég færi með þeim heim og þægi góðgerðir, sem ég og gerði. Þar kom fram að móðir- in var ákaflega þakklát yfir þessu. Ég held að flestir hafí tekið þessu vel. Það er ótrúlegt að svona leiðangur verði endurtekinn, að 60 tonna trépungur verði sendur hálfan hringinn í kringum ísland til að leita uppi berklasmit! Það er sannfæring mín að Sigurður Sigurðsson berkla- læknir hafí unnið þrekvirki. Hann varð að standa kófsveittur inni í þessu litla herbergi, en þar voru tal- stöðin og miðunarstöðin, gegnum- lýsingartækið, sjúklingarnir og oft- ast héraðslæknar, þetta var krafta- verk. Sigurður var oft þreyttur og dasaður." Afi reri aldrei lengra en á Leiruna Arni Jón Jóhannsson er fæddur í Reykjavík 20. júlí 1919, við Lauga- veginn. „Þá var ekki farið með mæð- urnar á sjúkrahús þegar þær áttu börnin. Ég þekki ekki Laugaveginn fyrir sömu götu. Þá var hann mold- argata og sveitamenn fóru mikið þarna um. Þetta var draumaheimur fyrir barn. Á horni Frakkastígs og Laugavegar var steinrétt þar sem sveitamennirnir geymdu hrossin meðan þeir voru í Reykjavík og eins með þau hross sem áttu að fara til slátrunar. Ég gerði mér það oft að leik að stelast á bak á þessum hross- um. Ég hef hugsað um það síðar hversu vel ég her sloppið að slasa mig ekki við þetta. Það hefur eflaust orðið mér til lífs hversu þröngt var í réttinni. Það var líka tilkomumikið á haustin þegar verið var að reka fé til slátrunar hjá Sláturfélaginu.“ Árni Jón sótti Miðbæjarbarna- skólann og síðar Austurbæjarskól- ann, eftir að hann var tekinn í notk- un. „Afí og amma, foreldrar móður mínar, ólu mig upp. Móðir mín átti mig í lausaleik. Amma mín hét Sig- ríður Jónsdóttir frá Skeljabrekku í Borgarfirði. Afí hét Sigfús Jónsson og var fæddur á Vatnsnesi við Kefla- vík. Árið 1874 var hann formaður á sexæringi og reri aldrei lengra en á Leiruna og út að Vogastapa. Síðar reri afi frá Reykjavík og fór aldrei lengra en út að Engey, þar varfínn fiskur, þaralitaður. Þetta er einhver besti fískur sem ég hef smakkað. Nú sést ekki lengur fiskur þarna. Þetta er allt glatað.“ Allir gangar voru með trégólf og kolin voru selflutt eftir þeim „Ég byrjaði á sjó fljótlega eftir fermingu, sem messadrengur á Eddunni, með Jóni Kristóferssyni skipstjóra. Fyrsti stýrimaður var Þórður Hjaltason og Guðmundur 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.