Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 70
VÍKINGUR Framh. af bls. 19 BLIKUR A LOFTII STJÓRN FISKVEIÐA veiða, sem felst í því ákvæði, sem segir að nytjastofnar á íslandsmið- um séu sameign þjóðarinnar á sama tíma og einstakir handhafar veiði- réttar þafa umtalsverðar tekjur af sölu á óveiddum fiski. Pessa dagana er allt það sem við vöruðum við með ályktun okkar og varnarorðum, bæði við þingmenn og ráðherra, að koma fram. Þeir stóru og sterku í sjávarútvegi eru að kaupa þá smáu og þá sem verr eru staddir Ijárhagslega. Það þyrfti heldur ekki að koma neinum á óvart að bátar og trillur yrðu sameinuð togurum. Það er í raun grátbroslegt að þeir, sem harðast börðust fyrir því að hefta samkeppni í veiðum og töldu fískveiðistjórnun alls ekki mega byggjast á samkeppni um aflann, skuli nú hvetja hvað mest til sam- keppni um aflann, aðeins ef uppfyllt er það skilyrði að útgerðin kaupi afl- ann fyrst óveiddan í sjó af öðrum útgerðarmanni. Sem sagt sam- keppni skal aftur upp tekin, bara borga fyrst öðrum útgerðarmanni. Skattareglur leiða nú af sér að samkeppnisstaða fyrirtækja, sér- staklega þeirra stærstu í sjávarútvegi um aflaheimildir, er með slíkum yfírburðum miðað við einstaklinga að enginn getur í raun keppt við þá um kaup á óveiddum fiski í sjó. Við munum því innan fárra ára sjá upp rísa 1012 stórfyrirtæki í sjávarútvegi sem verða með megnið af aflaheim- ildum í hafínu umhverfís ísland á sinni hendi. Ef útgerðarmenn halda að slík staða leiði ekki tilþess að hér á landi verði tekinn upp auðlinda- skattur, sem þeir hafa harðlega mót- mælt og raunar afneitað algjörlega, þá eru þeir í raun Iieimskari og ekki þær vitsmunaverur, sem ég hef þó gengið út frá að þeir væru upp til hópa. Sú niðurstaða margra, sem skrifað hafa í blöð nýverið, að nú- verandi ástand leiði til þess að upp verði tekinn auðlindaskattur í fram- tíðinni, er rétt, ef ekki verður tekið fyrir þá útfærslu á fiskveiðistjórnun sem nú er við lýði. Að óbreyttu kerfi verður þess ekki langt að bíða að útlendingar eigi hér meiri og minni aflaheimildir í sjó. Hvenær eiga er- lend stórfyrirtæki eitt stykki sjávar- þorp á íslandi? Minni sjávarþorp víða um land vantar fjármagn inn í fyrirtæki á staðnum, þau eiga fárra kosta völ og sum engra til að auka aflaheimildir sínar og þar með tekj- ur. Nú dugar ekki lengur að hafa dugandi skipstjóra til að fiska, það verður að kaupa aflann fyrst. Tillaga FFSÍ í framhaldi af ályktun FFSÍ frá 1989 og afstöðu okkar í ályktun sam- bandsstjórnar FFSÍ 20. janúar 1990, sem hafnaði kvótakerfi sem framtíð- arlausn, var settur upp vinnuhópur innan samtakanna. Starfshópurinn lagði fram tillögur á 35. þingi FFSÍ, sem haldið var um miðjan nóvem- ber 1991. Tillagan var samþykkt svo til óbreytt og er svohljóðandi: 35. þing FFSÍ samþykkir að leggja til sóknarstýringu við stjórn botn- fiskveiða. f samræmi við V. kafla laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða grein VII. í ákvæði til bráðabirgða, sem kveður á um að sjávarútvegs- ráðherra skuli láta fara fram athug- un á mismunandi kostum við stjórn fískveiða og með sérstöku tilliti til I. gr. Iaganna, um verndun, hag- kvæma nýtingu og að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu, verði framkvæmd fullnaðarskoðun á vel útfærðri sóknarstýringu sem stjórn- kerfi fyrir allar botnfískveiðar við Is- land. 35. þing FFSÍ leggur til að eftir- farandi meginatriði verði höfð sem sameiginlegar grundvallarreglur við útfærslu á kostum sóknarstýr- ingar við stjórn fiskveiða, sem FFSÍ telur besta kostinn til framtíðar. 1. Flotanum verði skipt upp í út- gerðarflokka, sem síðan verði skipt upp í undirflokka skipa með sam- bærilega sóknarmöguleika. 2. Eigi að endurnýja eða lengja (stækka) fískiskip þarf til þess úreld- ingu annarra skipa. Tonn á móti tonni. 3. Tegundaþak verði fundið fyrir 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.