Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 27
SAMVINNAN
21
hverjar vörur yrðu fluttar. Eins og fyr er skýrt frá, hafa
Bandaríkjamenn komist að raun urn, að bílar eiga betur
við en járnbraut, þegar um svo litla vegalengd er að ræða.
Vörur þær, sem flytja ætti, yrðu aðallega landbúnaðar-
afurðir og nauðsynjar bænda frá Reykjavík, í smáskömt-
um, einmitt vörur, sem mest eru fluttar með bílum í
Bandaríkjunum. Engar vörusendingar mundu teljast til
þess, sem Bandaríkjamenn kalla „carload freightu nema í
kauptíðunum haust og vor. öðru máli væri að gegna, ef
námur eða stóriðnaður væri eystra. En þar sem þar eru
engar námur og ekki hægt að sjá, að stóriðnaður muni
eflast þar í náinni framtíð, er mjög varhugavert að stofna
til járnbrautarlagningar með það fyrir augum.
Frumvarp það, sem fram „kom á Alþingi í fyrra, mun
að mestu leyti hafa verið bygt á rannsókn og skýrslum
Sv. Möllers verkfræðings. þSá, sem þetta ritar hefir enga
ástæðu til að ætla annað en að skýrslur þessa verkfræð-
ings hafi verið réttar, eða a. m. k. svo nákvæmar, sem
slíkar áætlanir geta verið. í áætluninni er gert ráð fyrir
ákveðnum fjölda fólks og ákveðnu vörumagni, sem flutt
verði árlega milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendis-
ins. Gerum ráð fyrir að flutningaþörf framtíðarinnar sé
rétt áætluð. En þegar litið er til þeirra tíðinda, sem gerst
hafa í samgöngumálum erlendis, verður ekki komist hjá
því að spýrja, hvað verða mundi úr öllum þessum áætl-
unum, 'ef bílarnir reyndust jjárnbrautinni hér eins skæðir
keppinautar og í Ameríku. Bílarnir tóku 77% ferðafólks-
ins frá Boston-brautinni. Er þá ekki hugsanlegt, að þeir
mundu fækka nokkuð þeim 51 þús. farseðlum, sem gert
er ráð fyrir, að seldir yrðu á öðru rekstursári brautar-
innar. — Engin ástæða er til að ætla, að Islendingar og
Bandaríkjamenn séu svo ólíkir, að þeir muui ekki kjósa
sama farartækið, þegar sömu skilyrði eru fyrir hendi, og
auðvitað það bezta og ódýrasta.
Nú er kvartað undan afarháum flutningskostnaði bíla
frá Reykjavík til Suðurláglendisins, og það með réttu.