Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Side 33
27
dag. Það or eiginlega tvennt, sem sumir gruna umboðs-
manninn um: að hann selji sauði fjelagsins við hærra verði
en hann gerir skil fyrir, og að hann kaupi vörur vorar
við lægra verði en hann reiknar oss þær. Sumir hugsa
reyndar, að annað eins og þetta sje ekki nema venjulegar
kaupmannsbrellur.
Þessa tortryggni hafa sumir b}rggt á þvi einkanlega,
að vjer fáum engar „lögfullar sannanir“ fyrir því, að oss
sjc fært rjett verð til reiknings; vjer fáum ekki „frum-
reikninga“ nema yfir sumt af vörunum, og vjer fáum eng-
ar sannanir fyrir því, að frumreikningar þeir, sem vjer
fáum, sjeu „ekta“. Það væri nú mikilsvert, ef þessivant-
andi skilríki fengjust með hóflegum kostnaði, og ef þau
þá, eins og menn að líkindum hugsa sjer, kæmu að til-
ætluðum notum Að vísu er mjer alvcg ókunnugt um,
hvað þessir menn meina, scm viija fá „lögfullar sannanir‘n
í þessu efni, en jeg geri ráð fyrir því, að úr því reikn-
ingar frá umboðsmanni fjelagsins cru eigi taldir það, þá
muni þurfa til þess svipaðar sannanir og hjá oss eru heimt-
aðar fyrir fasteignarheimildum og veðtryggingum, þ. e. að
segja: notarial-vottorð t d. um það, að þessi sauðahópur
hafi seizt með jicssu verði, sú eða sú vara hafi keypt ver-
ið með því og því verði, þessi reikningur frá þeim og þeim
væri samkvæmur löggiltri höfuðbók hans o. s. frv. í það
óendanlega. En ætli að slík vottorð yrði eigi ærið kostn-
aðarsöm. Hugsum oss, að menn kjer löbbuðu með búðar-
rcikning sinn til sýslumanns og bæðu hann að bera hann
saman við hina löggiltu höfuðbók verzlunarinnar. Sýslu-
inaður gerði það sannarlega ckki fyrir lítið, eins og von
væri Og hvað væri svo unnið? Það, jú, að reikning-
arnir hlytu að vera samhljóða höfuðbókinni. En setjuin
*) Það voru menn, sem lítinn eða engan pátt áttu í fjel. voru,
sem komu upp með þessar lögfullu sannanir og prjedikuðu um þær.
Þess vegna dvelur greinin svo mjög við þetta atriði. En þótt þetta
sama liafi ef til vill ekki komið fyrir í öðrum fjelögum, þá mun þó
víða vera til nóg af samskonar lijegðma. P J.