Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Side 40
34
sem reknar eru í verksmiðjum auðmauna1. Er það eftir-
tektavert, að einmitt hinir stækustu andstæðingar sósíal-
ista urðu fyrstir til að framkvæma liugmyndir þeirra; sýn-
ir það, hve mikill praktiskur sannleiki var fólginn í þeim.
í mörg ár hefir allri sykurframleiðslu og sykurhreinsun í
Bandafylkjum Ameríku verið stjórnað á skrifstofum eins
slíks „trust“ í Nýu Jórvík, Boston, Chicago og San Fran-
cisko. Með því hefir verið sparað ákaílega mikið fé, þar
sem verksmiðjurnar hafa losast alveg við að hafa sérstak-
ar skrifstofur, agenta, umboðsmenn og útsölustaði, er kepptu
hver við annan, og eyðilögðu hver annan, og afleiðingin
er, að sykurinn hefir lækkoð mjög í verði, og framleið-
endur þó fengið meiri ágóða, og getað goldið verkmönnum
sínum hærra kaup en áður. Þetta er nú, eins og allir sjá,
nokkurn veginn hið sama, sem að landstjórnin hefði alla
yfirumsjón með frandeiðslu og útsölu varanna. Einungis
er sá hængur á þessu fyrirkomulagi, að einmitt af því
það er ekki sjálf landstjórniu, sem hefir yfirumsjónina,
þá geta þessir stóreignamenn, er sjálfir ráða sínu skipu-
lagi, notað það til eigin hagsmuna með því t. d. að fram-
leiða svo lítið, að verðið hljóti að hækka, og þetta hafa
þeir líka stökusinnum reynt, einkum er kaup verkmanna
hefir hækkað. En án slíks skipulags ræður hending ein
því, hvort hinir einstöku framleiðendur hitta á að fram-
lciða hæfilegan forð handa þjóðunum af hverri vöru sem
er, enda er ekkert tíðara, en að þurð verði á einhverri
vörutegund, svo að húu verði óhæfilega dýr, eða jafnvel
ófáanleg fyrir fjölda manna, sem og hitt, að ofmikið sé
framleitt af vöru, svo hún falli hóflaust í verði og fram-
leiðendur hcnnar þúsundum saman fari á vonarvöl, og
verði að atvinnulausum landhlaupurum og óróaseggjum.
En það, sem eftirtektaverðast er við þessa hreyfingu,
‘) Hið samcinaða gufuBkipafélag er eitt af þessurn „trusts“, þar
scm gufuskipaeigendur kafa go;t fjárlag með sér, í stað þess að keppa
kver við aunan; en af því félag þetta steudur ekki undir kinu almenna
löggjafarvaldi, þá er það einskonar einokuu.