Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Síða 46
40
anna sýnir reynslan, að svörtu börnunum gengur námið
eins vel og þeim hvítu.
En hverjar eru þá orsakir þess, að hinir hvítu Ev-
rópu þjóðflokkar hafa gerst ,,herrar“ allra annara þjóð-
flokka, hafa hvarvetna haft yfirhöndina yíir þeim, og eru
kennarar þeirra í allskonar menning og listum? Hvers
vegna hafa Norðurálfumenn einir reist voldug menningarríki,
með öllum þeirra undrum og kynjum af vélum og mann-
virkjum? Hvers vegna verða gáfaðir Japansmenn að læra
af Norðurálfubúum alt það, er að menningu og verklegum
framförum lítur?
Hinn enski höfundur svarar þessum spurningum og
segir, að orsökin sé ein, og hún sé sú, að Norðurálfumenn
hafi lært að nota fullkomnast félagslegt skipulag (social
organisation); og því næst færir hann rök til þess, að
skipulegt félagslíf sé grúndvöllur allrar menningar; að án
þess geti engin menning átt sér stað, án þess sé eiustak-
iingurinn aflvana, en að í hagfeldu skipulagi þúsundfaldist
afl og hæflleikar einstaklinganna, því það geri heilar þjóð-
ir að einum lifandi líkama, og einstaklingana að samvinn-
andi líffærum. Það, sem einstaklingurinn framkvæmir í
skipulegu félagslífi, verður öllum að notum, og það, sem
allir safna, verður hverjum einstaklingi til gagns og þroska.
Það víkkar og stækkar líf einstaklinganna, svo það verð-
ur að þjóðlífi. Það safnar krafti úr þúsundum einstaklinga
í hvern einstakling, úr þúsund heilum í einn heila, án þess
nokkur missi nokkurs við það, og á sama hátt dreifir það
frá einum til allra. Þó til væri þjóðflokkur af tómum spek-
ingum, þá mundi hann áu skipulags ekkert mcgna t-il móts
við þjóðflokk af tómum heimskingjum, er lært hefðu skipu-
legt félagslíf.
En skipulagið orkar meiru. Það tengir einnig saman
aldir og kynslóðir. Það, sem ein kynslóðin vinnur, það
erflr hin næsta. Hún þarf því ekki að byrja frá upphafi,
að eins halda áfram, þar sem hin næsta hætti. Skipulag-
ið eitt, gerir þctta mögulegt; það er sá söfnunarsjóður, sem