Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Side 64

Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1896, Side 64
58 ustu og þroskuðustu skipulagshugmyndir meðal annara þ.jóða, og það er sennilegt, að sagan muni síðar meirtelja það merkilegan viðburð, að slíkar skipulagshugmyndir skyldu koma hér upp og verða framkvæmdar í svo óþroskuðu þjóðfélagi, sem vort er. En fyrst nú kaupfélagsskapurinn er rétt spor í rétta átt, fyrsta spor til nýs og betra skipulags, þá sjá allir, hvílík naúðsyn oss er að leggja rækt við hann, að afla oss þeirrar þekkingar og þess þroska, er gerir oss færa um að fullkomna þennan vísi, að skilja og nota þá eðlisstefnu (tendens), sem fólgin er í slíku skipulagi, og sem gefur því þá kosti, sem það hefir fram yfir annað skipulag. Og það er ekki einungis í kaupskap eða verslun, að þetta skipulag — samvinna og sjálfsábyrgð — er fram- kvæmanlegt og hentugt; það er hvervetna hægt að koma því við, og hvervetna mun það reynast réttlátara og far- sælla en nokkurt annað fyrirkomulag, sem reynt hefir ver- ið, enda ryður það sér hvcrvetna til rúms meðal annara þjóða, og hrindir fram hinum stæstu framfarafyrirtækjum. Á sama hátt sem vér uú rekum á okkar mælikvarða stór- kostleg verslunarviðskifti, með nærfelt hálfu minni tilkostn- aði en áður var gert, á sama hátt getum vér rekið hver önnur fyrirtæki í búnaði, iðnaði og bókmentamálum. En til þess þarf almennri mentun og þekkingu inikið að fara fram hjá oss, og margir hleypidómar að hverfa. Og einnig því fáum vér hægast komið til leiðar með samvinnunni. Eng- in konungleg lagaboð gera oss að frjálsum og mentuðum mönnum, heldur vorir eigin hæfileikar til skipulegs félags- lífs og djarflegrar framsóknar. B. J.

x

Tímarit kaupfjelaganna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaganna
https://timarit.is/publication/328

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.