Samvinnan - 01.04.1968, Síða 8
búa betur að lýðræði sínu,
þegar þeim næst gefst tæki-
færi.
Ég vil að lokurn fara nokkr-
um orðum um grein Magnúsar
Torfa Ólafssonar: Vietnam
logar. Ég tel birtingu þeirrar
greinar algjör mistök af yðar
hálfu. Hún er áróðursgrein af
lakasta tagi, skrifuð til þess að
villa mönnum sýn og í því
trausti, að lesendur skorti bæði
vit og þekkingu til þess að sjá
við höfundinum. Og ég mun
leiða fram sannanir fyrir því,
að þetta er ekki sleggjudómur.
Vietnam hefur orðið fyrir
þeirri ógæfu að verða blóðugur
vettvangur heimspólitískra
átaka. í slíkum átökum verður
að sjálfsögðu margt málum
blandið og ná því deilur og
hvífari
blæfegurri
og
Imbefri
jvoflur með
r t
allar
jvottavélar
NÝTT LÁGFREYÐANDI VEX
tryggir yður beztu kaupin
ásakanir heimshorna á milli. í
Bandaríkjunum hafa þessi mál
veruleg áhrif á komandi for-
setakosningar og þá notuð
mjög til persónulegra ófræg-
inga milli einstaklinga og
stjórnmálaflokka. Ummæli
manna þar verður að dæma út
frá þeim forsendum. Evrópu-
menn óvinveittir Bandaríkjun-
um hafa hins vegar notað
styrjaldarástandið til að
ófrægja Bandaríkjamenn bæði
í ritum, hópgöngum og úti-
fundum, og þá einkum „vinstri
sinnað fólk“ í háskólum. Oft
eru slíkir fundir byggðir á
„upplýsingum" ekki ólíkum
þeim, sem eru í grein Magnús-
ar Torfa, ef ekki þaðan af verri.
Mönnum af tagi Magnúsar
er það mjög í mun að koma
fólki til að trúa því, að flestir
íbúar Vietnam hefðu óðfúsir
kosið kommúnistann Ho Chi
Minh, ef kosningar um sam-
eining landsins hefðu farið
fram tveimur árum eftir að
Genfarsamningurinn var gerð-
ur, svo sem þar var ráð fyrir
gert. Þessu halda þeir blákalt
fram þótt upplýsingar liggi
fyrir, að um milljón manns
beinlínis flýði í lok nýlendu-
styrjaldarinnar við Frakka frá
þeim landshluta, sem Ho réð,
en fáir sem engir yfirgáfu hinn
landshlutann. Magnús Torfi
hyggst nú sanna þetta í eitt
skipti fyrir öll, og vitnið, sem
hann leiðir fram, er sjálfur
Bandaríkjaforsetinn Dwight
Eisenhower í bók sinni „Mand-
ate for Change“. Torfi segir í
grein sinni:
„-----Bandaríkin tóku hins
vegar þá afstöðu, að Vietnam
væri skipt í tvö ríki, og studdi
valdhafana í Saigon eindregið,
þegar þeir neituðu að láta fara
fram kosningar til þess að
sameina landshlutana. Eisen-
hower þáverandi forseti skýrir
svo frá ástæðunni á 372. blað-
síðu í Mandate for Change,
öðru bindi endurminninga
sinna frá forsetaárunum:
„Ég hef aldrei rætt né átt
bréfaviðskipti við nokkurn
mann kunnugan málum í Viet-
nam, sem ekki var þeirrar
skoðunar, að hefðu kosningar
farið fram myndu máske 80%
þjóðarinnar hafa greitt komm-
únistanum Hó Sji Minh at-
kvæði.““
Magnús Torfi er sem sagt
ekki í neinum vandræðum.
Þetta heitir bókin, þarna er
blaðsíðutalan og svo kemur
tvídepillinn og ummæli forset-
ans innan tilskilinna gæsa-
lappa. Það er aðeins einn galli
— þýðingin er fölsuð. Á tveim-
ur stöðum eru felldir úr setn-
ingarhlutar, sem gjörbreyta
Áður
hör&um
höndum -
meö
atrix
mjúkum
höndum
8