Samvinnan - 01.04.1968, Qupperneq 15

Samvinnan - 01.04.1968, Qupperneq 15
á hendur stjórn blaða og útvarps. Kenn- arar andvígir nazistum voru reknir úr starfi, og allt skólakerfið gagnsýrt hinu nýja eitri. Mein Kampf varð skyldulesn- ing í skólum. Bókabrennur og blysfarir til heiðurs foringjanum voru meðal þeirra leikbragða sem nazistar beittu til að sefja þjóðina. Hitler kunni að notfæra sér ýmsar frumstæðustu uppsprettur skáld- skapar og trúarbragða, sem fyrri vald- hafar höfðu vanrækt: hið stórfenglega, gljástrokna, villimannlega, dularfulla. „Við höfum ekkert samvizkubit," hróp- aði hann. „Já, við erum villimenn. Við viljum vera villimenn. Það er sæmdar- heiti.“ Vitfirring Hitlers var illu heilli vitfirr- ing glæsileikans. Slægð hans í pólitík, ekki sízt utanríkispólitík, á árunum 1933 —39 jaðraði við snilld. Hann hafði þrennskonar mikilvæga yfirburði: hann var sjálfur lögin í landinu, hafði alls engar grundvallarreglur í hátterni eða samskiptum við aðra og var alla tíð reiðubúinn að leggja útí styrjöld, en leið- togar lýðræðisríkjanna voru bundnir þingræði og kosningum og vildu flestu fórna til að afstýra styrjöld sem kynm að þurrka út siðmenninguna. Hitler var frábær leikari og virtist ævinlega geta sannfært áheyrendur í hlutverkunum sem hann kaus að leika hverju sinni: hann hafði á valdi sínu ljónsöskrið (fyr- ir heimamarkað), kænsku refsins (til að sefa ótta Pólverja eða gera Frakka tortryggilega), vonzku nöðrunnar (t. d. þegar hann hvatti til morðsins á austur- ríska kanslaranum og afneitaði síðan morðingjunum), og blíðleik dúfunnar (einsog þegar hann hjalaði við Breta um stríðsótta sinn og friðarþrá — þegar búið væri að leiðrétta tiltekið ranglæti). Hann byrjaði á að segja sig úr Þjóða- bandalaginu og fékk 95% stuðning við þá aðgerð í þjóðaratkvæði. Hann gerði griðasáttmála við Pólland. Þegar austur- rískir nazistar myrtu Dollfuss kanslara 1934 ánþess að ná völdum, afneitaði hann þeim. Saar-héruðin voru sameinuð Þýzkalandi 1935 eftir þjóðaratkvæði, og sama ár var tekin upp herskylda í Þýzkalandi. En Hitler hélt áfram að tala máli friðarins. Þegar Frakkar gerðu sátt- mála við Sovétríkin 1935, tók Hitler þá miklu áhættu að þverbrjóta ákvæði Ver- sala-sáttmálans gegn hollráðum hers- höfðingja sinna með því að senda her- lið inní Rínarlönd. íbúarnir voru frá sér numdir af fögnuði, en Bretar og Frakkar voru í senn ruglaðir og skelf- ingu lostnir, enda höfðu friðartilboð Þjóðverja aldrei verið ákveðnari en ein- mitt þá. Hefðu lýðræðisríkin látið hart mæta hörðu, er enginn efi að Hitler hefði lyppazt niður, en honum var fullkom- lega ljós lömun þessara ríkja. Pólverjar einir voru reiðubúnir að berjast. Árið 1936 höfðu ítalir lagt undir sig Eþíópíu þráttfyrir fordæmingu og refsi- aðgerðir Þjóðabandalagsins. Viðkvæmni ítala gagnvart almenningsálitinu í heim- inum gerði Mussolini móttækilegri fyrir tillögur Þjóðverja um bandalag rikjanna, sem Hitler hafði spáð í Mein Kampf rúm- um áratug áður. Þannig varð til hug- Þrjár áróðursmyndir nazista: Efst: Goebbels á tali við tónskáldið Richard Strauss. f miðið: Hitler þakkar hrœrður samherjum úr byltingartilrauninni 192-3. Neðst: Kosningaspjald frá 1933 sýnir Hitler í vinsamlegum samrœðum við sendimann páfa. 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.