Samvinnan - 01.04.1968, Qupperneq 49

Samvinnan - 01.04.1968, Qupperneq 49
NÍNA BJÖRK ÁRNADÓTTIR: Á svart lauf skrifaði myrkrið eina sögu lét svo laufið vera hjá mér eina stund. Og við sátum undir trénu tvær systur skuggar greinanna léku í kríng. Og við þrýstum okkur fast að hvor annarri því skyndilega flaug vængur dáins fugls yfir höfðum okkar. Og við þrýstum okkur fast að hvor annarri. Og þú hvíslaðir grátandi veist þú hvað það er og ég hvíslaði grátandi nei og þú hvíslaðir grátandi Ástin það er ástin. □ Ef til vill ef þú hlustar vel heyrirðu um hvað ég er að hugsa einhver hurðarhúnn sem hönd mín greip um oft var það. Hvernig þvotturinn hékk á snúrunum. Líka þegar lömbin fæddust. Og næturnar þú í myrkrinu brimið svæfði okkur bæði. Óttinn var ekki tíður gestur. Við sváfum stundum langt inní snjónum með lófana fast saman. Og hafið fjaran. Eitt get ég sagt þér Hvernig á að lifa Aðeins í draumum sínum Aðeins í draumum sínum jafnvel þó sólin elti mann allan daginn. JÓHANNES STRAUMLAND: LEIÐRÉTTING Ég spurði þann, sem að staðaldri horfist í augu við dauðann: hvað sérðu féiagi? Og hann svaraði: ekkert. Samt veit ég að skopskyn hins mikla Ijáberanda virðist hafið yfir gagnrýni, óviðjafnanlegt túlkun hans ýmist fíngerð eða ruddaleg verður ei hamin í orðum. Sakir heimsku vorrar skiljum vér ekki hina afdráttarlausu fyndni hans, en skynjum hana svo sem ritað er í skuggsjá og óljósri mynd. Þetta er víst: hin fullkomna fyndni er hin fullkomna fjarstæða. Og sá er heldur áfram að horfa án undanbragða mætir að lokum spyrjandi augum barnsins. Og sá er snýr sér undan svo sem mörgum verður mætir einnig að lokum spyrjandi augum barnsins. Og þér mun skiljast án efa merking fágætra orða er sigurinn vex eins og hvítt blóm úr riffilhlaupum. KRISTINN REYR: FRAMÚR Hraðinn stefnir á hljóðmúrinn, eltir hann uppi og ætlar sér gegnum. Hraðar en hljóðið er reyndar hlægileg lágspenna, vilji eg komast til vegs í velferðarríki, ætli mér upp, áfram, — framúr í flogum, framúr í æsilegum eltingaleik við hæla minnar háttvirtu persónu, sem hefur tærnar. 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.