Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Síða 6

Andvari - 01.06.1963, Síða 6
4 SÍMON JÓH. ÁGÚSTSSON ANDVARI ]ean-]acques Rousseau. Rousseaus á uppeldis- og fræðslugildi lestrar er eflaust runnið frá þessari reynslu hans. Eina bók þreyttist Rousseau aldrei á að lesa: Ævisögur Plútarks. Faðir hans ræddi við hann um efni þessara ævisagna, einkum þau atriðþsem verða máttu til þess að glæða ást hans á frelsi og ættborg hans. Hann sagði eitt sinn við son sinn: „Jean Jacques, elskaðu ættjörð þína. Þú ert Genfarbúi. Einhvern tíma munt þú koma meðal annarra þjóða, en aldrei munt þú kynnast neinni þjóð, sem lík- ist þinni.“ Orð þessi báru ávöxt. Þótt Frakkland yrði önnur ættjörð Rousseaus, bar hann ávallt einlæga ást til ættborgar sinnar. Með stolti kallar hann sig borgara Genfar. Það var hinn eini titill, sem hann vildi bera. Þó varð Rousseau eins konar Húsavíkur-Jón. Genfarbúum þótti hann of franskur og Frökkum þótti hann of mikill Genfarbúi. Við hvoruga kom hann skapi að fullu. Þegar Rousseau var 10 ára gamall, varð faðir hans að hverfa frá Genf sakir deilu, sem hann lenti í, og upp frá því varð samband þeirra aldrei náið og var honum enginn styrkur að föður sínum, hvorki fjárhagslegur né siðferðilegur. Næstu fjögur árin er hann á vegum ættingja sinna og hlýtur þar sæmilega fræðslu. Þá cr honurn komið til náms hjá leturgrafara, cn hann var hrottamenni og sætti Rousseau þar illri meðferð. Strauk hann loks frá meistara sínum og fór frá Genf til Savoy-héraðsins í Frakklandi. Flækt- ist hann þar um nokkurn tíma, unz hann bar að garði kaþólsks prests. Veitti hann honum mat og aðra aðhlynningu og taldi svo um fyrir Rousseau, að hann tók því líldega að taka kaþólska trú. „Fg seldi trú mína fyrir brauð,“ sagði hann síðar. Sendi prestur hann til aðalskonu einnar, frú De Warens, en hún var að uppruna Svisslendingur. Átti hún að snúa Rousseau til kaþólskrar trúar. Þegar fundum þeirra bar fyrst saman, var Rousseau 16 ára, en hún 28 ára. Frú De Warens var fríð kona, alúðleg, örlát, allvel menntuð, en ekki við eina fjöl felld í ástamálum. Hún heillaði Rousseau með fegurð sinni og blíðu, og sá hann þegar í henni staðgengil móður sinnar, enda nefnir hann hana oftast mömmu. Minntist hann hennar alla tíð með óblandinni þakklátssemi. Átti hann at- hvarf hjá henni fram undir þrítugt. Rousseau fór hrátt í klausturskóla í Torino í Italíu, þar sem hann átti að fá fullkomna trúarfræðslu, og þar fóru trúarskipti hans fram. Um tvö ár var hann á flækingi í Ítalíu, lagði stund á ýmis störf og lærði til hlítar ítölsku. Síðan sneri hann aftur til frú De Warens, sem tók vel á móti honum. Gerði hún ýmsar tilraunir til þess að setja hann til náms, en þær strönduðu á hviklyndi hans. Rousseau var mjög söngelskur og var honum kornið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.