Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1963, Page 38

Andvari - 01.06.1963, Page 38
36 SIGURÐUR SIGURMUNDSSON ANDVAIU er þér til Hrafns?" segir hún. „Leiðir eru mér allir svartir fuglar," segir draum- konan. „Hvernig er þér til Þorgils skarða?" segir mærin. „lllir þykir mér allir þeir fuglar, er í sitt hreiður skíta.“ Síðan kvað hún: Seg Þorvarði | þessa grímu |ungum auðskata | ef þig eftir spyr. | En þótt þig eigi | cftir fregni | þá skaltu segja | syni oddvita. | Vísan er út- lögð: Segðu Þorvarði, hinum unga höfð- ingja frá þessari nótt, ef hann spyr þig. En seg honum samt þótt hann þig eigi eftir spyrji. Þessi síðasta vísa vitnar um það, að draumkafli þessi er fyrst og fremst kominn þarna inn varðandi Þorvarð Þór- arinsson. Hann mun skrifaður nokkru eftir að atburðir þeir sem draumarnir eru tengdir gerðust. Sennilegast er, að hin unga mær hafi kynnzt Þorvarði á alþingis- ferðum hans um Laugardal og verið hann svo minnisstæður, að dreyrnt hafi hana drauma, sem umtalsverðir þóttu, en síðan hafa aukizt og vaxið í meðförum á leiðinni frá manni til manns. En merki- legastir eru þcir þó fyrir það, að þarna kemur fram hvorki meira né minna en spegilmynd af öllum stjórnmálamönnum þessara tíma, þeim sem valdamestir voru og urðu, færð fram í nýstárlegu tákn- máli. Hér túlkar höfundur Sturlungu skoðanir sínar eða sinnar samtíðar á fyrir- mönnum þjóðarinnar í skini verka þeirra og athafna, varðandi eitt afdrifaríkt stór- mál — endalok þjóðveldisins. Merkilegt má það teljast, að draum- konan nefnir sig Guðrúnu Gjúkadóttur. Hún hefur þá er sagan var rituð, verið um árabil þekkt persóna í hugum Islend- inga úr Eddukvæðum og Fornaldarsögum Norðurlanda, sem þá hafa þó verið ó- skráðar. Þessi ægigrimma fornkona úr heiðnum sið, eiginkona Sigurðar Fáfnis- bana, birtist hér á sviðinu sem persónu- gervingur allrar hinnar íslcnzku þjóðar og túlkar nú á dulbúinn hátt gagnstæð sjónarmið við þá söguskoðun, sem sagna- ritunin skapaði og síðan hefur gilt. At- hyglisvert er það, að draumkonan segir við meyna, þá er hún hafði birzt henni í þriðja sinn: „Nú hefur þetta þrisvar borið fyrir þig, enda þrisvar allt forðum. Það er og eigi síður að góð er guðs þrenn- ing.“ Idér er hún enn látin ítreka rnikil- vægi þess boðskapar, sem hún hafði að flytja. Skal nú huga nokkuð gerr að því, sem draumkonan segir um fjóra þá valdamenn þjóðarinnar á þessum tíma, sem mestu gátu ráðið um framtíð hennar og örlög. „Allir þykir mér þeir góðir fuglar, sem hátt fljúga," er sá vitnisburður, sem Þor- varður Þórarinsson fær hjá henni. Er hann henni og mjög hugstæður, eflaust vegna eindreginnar afstöðu hans gegn hinu erlenda valdi. En vitnisburður sá, sem Hrafn Oddsson fær: „Leiðir eru mér allir svartir fuglar," er allt annað en góð- ur. Þrátt fyrir marga og góða kosti þessa forustumanns, þá hefur hann borið ein- kenni hins slynga stjórnmálamanns, verið beggja handa járn, jafnan hagað seglum eftir vindi á hverjum tíma. En hér bcinir draumkonan sennilega geiri sínum að honum vegna framkomu hans í brúð- kaupsveizlunni á Flugumýri, á undan brennunni, sem hann var mótfallinn, en bar þó ekki gæfu til að afstýra. Hin háðu- legu og niðrandi ummæli hennar um Þorgils skarða á þessum vettvangi, þurfa raunar engan að undra. Hann hafði til þeirra unnið með framferði sínu og þjónkun við vald konungs í þágu eigin metorðagirndar. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að minning mesta valdamanns þessa tíma- bils — Gissurar jarls Þorvaldssonar — hefur eftir dómi sögunnar í hugum ís- lendinga löngum verið orpin þungum skugga. Eftir því áliti hefur hann verið talinn öðrum samtíðarmönnum sínum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.