Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1963, Side 44

Andvari - 01.06.1963, Side 44
42 GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON ANDVAEl sinni sem oFtar, er ég var staddur við Barnafoss, gekk ég fram með hraun- ltambinum norðan árinnar og austan fossins. Sá ég þá á einum stað, þar sem áin hafði í flóðum rofið urðina undir kambinum, hvar greina mátti þunnt, svart jarðlag undir hraunhellunni. Ekki gat ég ímyndað mér að hér væri urn ann- að að ræða en leifar þess lands er forðum grófst undir hrauni, og var þó enginn maður til þess að segja um fyrir víst hvort svo væri. Er það fræðimanna einna á því sviði að ráða í rúnir hinna liðnu alda, raða þar saman líkindum og vissu, unz það verður heild og opinberun, sem áður var leyndardómur þagnar og fyrnsku. Enn má láta sér í hug koma, er maður stendur á Hraunsásnum, að hér sér vítt of land mikilla sagna. Sumar þær s'águr, svo sem Gunnlögs saga ormstungu, hafa okk- ur verið eftirlátnar í Ijósri og listrænni heild ágætra höfunda, en af öðrurn hafa geymzt brot ein, svo dul að það rétt örlar á þeim í dökkum vegg fyrnskunnar, sem seint eða aldrei verður rofinn. í brekkuhalli, sunnan undir ásnum, stendur bærinn Hraunsás í túni sínu. En við rætur túnsins verður dalur í landið. Hann liggur allt frá Hvítá við austurenda ássins og þversker ásinn vestanmegin túns í stefnu til árinnar þar sem nú rennur hún. Er dalurinn þar mjög djúpur og þröngur með flughröttum urðarhlíðum og stórgrýti á botni. Þar heitir Melrakka- dalur, nú oftast í daglegu rnáli nefndur Skolladalur og er hvortveggja nafnið einnar og sömu merkingar. Um þennan dal getur Landnáma, þar sem segir frá landnámi Hrosskels, þess er nam Hvítár- síðu milli Kjarrár og Fljóta. Þar segir svo: Þórarin vá Músabölverkr er hann bjó í Hraunsási, þá lét hann gera þar virki ok veitti Hvítá í gegnum ásinn, enn áðr fell hon um Melrakkadal ofan. Illugi ok Tindr sóttu Bölverk í virkit. En þessi Þórarinn, sem Landnáma hér segir frá, var bróðir Illuga svarta á Gilsbakka og Tinds á Hallkelsstöðum, en þeir voru synir Hallkels, sonar Hrosskels landnáms- manns. Landnáma er um flest óljúgfróð og er löngum til hennar vitnað. Þó hef ég heyrt það af rnunni mikils meistara norrænna fræða, að hér hljóti að vera missögn, um Melrakkadal hafi Hvítá varla runnið eftir að byggð hófst í land- inu. Samt stendur sögnin og heldur uppi merki sínu, og víst er dalurinn gamall farvegur mikils fljóts. En undarlega hefur hún verið sett, á þeirn tíma, þessi skógar- vin sunnan hins úfna og ógreiðfæra hrauns á aðra hönd, en á hina aðþrengd af I lvítá og skorin frá þeim gróðurlend- urn, sem nú eru heimaland Hraunsáss. Mundi hér ekki forvitnilegt um að litast þeim, er skil kunna á þeim dráttum, er saga og tími rista í andlit móður jarðar? Og ekki fæ ég að fullu skilið hvers vegna þessi bær sunnan Hvítár, sem ekkert hraun á í landi sínu, hefur frá fyrstu tíð byggðar í landinu verið kenndur til hraunsins norðan ár, ef hann hefur ekki verið tengdur því á einhvern hátt, þá er honum var gefið það nafn er enn ber hann. En snúum nú til árinnar, þar er nú fellur hún milli áss og hrauns, ýmist blá og tær, með lit þess vatns er miðla henni lindir Hallmundarhrauns, eða ,gráskolug og þykk af jökulgormi, ef Geitá eða önn- ur aðföll undan jökulrótum hafa náð yfir- hönd urn litgjöf hennar, en alltaf á þess- um stað straumþung og ábúðarmikil, og þar er Barnafoss. Hann hét að fornu Bjarnafoss og veit nú enginn af hverjum sökum hann hlaut þá nafngift, né heldur hitt hversu lengi hann hefur borið það nafn. Ekki er hann mikill foss í venjulegri merkingu, og er hitt einkennilegra hversu áin dylur sig þarna í þröngum undirgöngum. En um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.