Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1963, Page 52

Andvari - 01.06.1963, Page 52
50 GUDMUNDUR IIALLDÓRSSON ANDVARl mikilli hálku. Við létum líða úr okkur í dokkinni, það lengdi líka tilhlökkunar- tímann og jók spennuna. Þar hátt uppi lá veröldin fyrir fótum okkar, fljótandi í kynlegri birtu. Á leiðinni niður skvnjaði ég fátt nema hraðann og storminn í fangið og óttann við að bóndinn gæti ekki stöðvað sleðann áður en hann stevptist með okkur í gilið. Hann skildi hifreiðina eftir niðri á veginum og kom gangandi heim tröðina. Hann fór sér hægt og stanzaði til að h'ta í kringum sig. Það var eins og hann væri hér ókunnugur. Þegar hann kom heim, spurði hann hvort fólkið væri inni. Ég sagði honum það væri allt inni. Hann fór hvorki úr úlpunni né skónurn fram í dyrum, eins og hann var vanur, og sagðist ekki ætla að stanza neitt. Það var fátt sagt þessa stund sem hann stóð við, nema hann bað um að ekki yrði haft fyrir kaffi handa sér, og eitthvað var talað um, að þetta ætlaði að verða kalt vor. Þegar hann gerði sig líklegan til að kveðja, sögðust foreldrar mínir ætla að koma út á hlaðið. Ég sá þau urðu ekki samferða inn aftur, heldur gengu sitt í hvora áttina, hann suður með bænum, hún út að húsunum; þó vissi ég ekki til þau ættu þangað erindi. Það tók að birta ylir Norðurlandsveginum. Bóndinn hafði hraðan á ofan varjrann og náði mér strax. Ég fann að þunginn fyrir brjóstinu leitaði upp í hálsinn, þrýsti að raddböndunum, og mér þótti gott hann sagði ekki neitt. Við vorum vanir að þegja saman, þajð olli engum erfiðleikum nú fremur en áður. Við áttum fáein skref ófarin niður að bílnum. Ég sá hann var öðru hverju að líta til lofts. — Mér sýnist hann vera að breyta um átt, sagði hann. - Já, sagði ég. — Og hann er heldur að hlýna, hélt hann áfram. — Kannski. — Vonandi snjóar hann ekki meira í vor. — Maður vonar það. — Sumarið getur svo sem orðið gott. — Já, ef hann breytir til. — Hann breytir áreiðanlega til. Á eftir reyndi ég að rifja upp, hvað við höfðum verið að tala um. Við staðnæmdumst á veginum, stýrismegin við bílinn. Það var ekkert sagt, það var búið að segja allt nema það, sem ekki var hægt að koma orðum að. Hann kveikti sér í sígarettu. Það gladdi mig að sjá, hvað hann tók þessu rólega. Hefði ég ekki fundið herpinginn í raddböndunum og þennan þunga tómleika fyrir brjóstinu, hefði ég getað látið mér detta í hug, að bóndinn væri að skreppa snögga ferð út í kauptúnið og kæmi aftur um kvöldið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.