Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1963, Side 69

Andvari - 01.06.1963, Side 69
ANDVARI í SLÓÐ V í NLANDSFARA 67 Frá Gander hafði ég talað í síma við E. R. Seary, prófessor í ensku við há- shóla Nýfundnalands í St. John’s, og spurt hann m. a. um merking þessa nafns. Bréf frá honum fékk ég um þær mundir, sem við fórum frá Nýfundnalandi. Hann skýrir fyrra hluta nafnsins eins og hér er gert, hafði grafið upp nafn- myndina Anse á la Médée í heimild frá 1862 og gizkar á, að síðari liðurinn sé skipsheiti (Medea í grískri goðafræði) og nafnið merki þá Medeuvík. Ekki verður skorið úr því að sinni, hvor hafi upp á rétta nafnskýring að bjóða, hinn ólærði eftirlitsmaður í Lance-aux-Meadows eða hinn lærði prófessor í St. John’s. En óskapnaður örnefnanna á þessum slóðum vekur trega í huga íslendings, þegar hann hugsar til hinna fögru og tæru nafna, sem nýi heimurinn missti af: Helluland — Markland — Vínland — Furðustrandir — Kjalarnes — Straumfjörður — Hóp. Umhverfi Lance-aux-Meadows. Tveir flóar skerast suður í norðurskaga Nýfundnalands. Heitir hinn stærri og vestari Pístóluflói (Pistolet Bay), en hinn Idelgiflói (Sacred Bay). Hinn síðar- nefndi er 12—13 km víður, milli Laukhöfða (Cape Onion) í vestri og Baldhöfða (Cape Bauld) í austri, og stendur fiskiþorpið Lance-aux-Meadows miðja vega fyrir botni flóans. Llti fyrir þorpinu er eyjaklasi, og ber þar mest á Stóru og Litlu Helguey (Big og Little Sacred Islands). Sjálft stendur þorpið við litla og grunna vík milli grasi gróins tanga í vestri og lítillar hamargnípu í austri, sem Kollur heitir (Round Head). Utsýni frá Lance-aux-Meadows og þó einkum frá hæðunum í grennd við þorpið er mjög vítt og fagurt. Sér þvert yfir Fagureyjarsund (Strait of Belle Isle), sem hér er um 50 km breitt, en er mjóst um 15 km, til Labradorstrandar, sem minnir gamlan ísfirðing á Snæfjallaströnd með fönnum neðarlega í hlíðum um hásumar. Eyjaklasinn á flóanum setur mjög svip á landslagið, ekki sízt Litla Helgaey, sem minnir á Drangey. Yfirleitt þótti okkur landslagið hið næsta, höfðar og eyjar, furðulega svipað Skagafirði. Við þóttumst kenna þar Þórðar- höfða, Málmey, Drangey. Hér hefði Skagfirðingurinn Þorfinnur karlsefni af þeim sökum átt að kunna vel við sig. í norðausturátt sér út til hafs, en í miðju mynni Fagureyjarsunds drottnar sjálf Fagurey og svipar til axla Herðubreiðar, með upptyppingi í miðju. A fundarstaðnum. Fundarstaður hinna fornu rústa er svo sem tíu mínútna gang vestur frá þorpinu, á bökkurn Svartandarlækjar (Black Duck Brook), þar sem hann fellur í Flakvík (Epaves Bay) vestan tanga þess, sem fyrr getur. Svartandarlækur er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.