Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1963, Page 93

Andvari - 01.06.1963, Page 93
ANDVARl VERZLUN SÖLUNEFNDAR Á EYRARBAKKA ÁRIN 1791—95 91 að ekki hefði gætt sérlega mikillar hag- sýni hjá þeirn, eftir að þeir tóku við verzl- uninni sumarið 1793. Skrifaði nefndin þeim allharðort bréf út af þessu vorið I79415 0g ]^vag ]iafa ggfjð landsmönn- um meira fyrir fiskinn en lausakaupmenn hefðu gert. Sömuleiðis taldi nefndin þá hafa gefið hærra verð fyrir kindakjötið en gert væri á Norður- og Austurlandi, og væri þó kjötið yfirleitt lakara syðra en þar. Einnig það kvaðst nefndin hafa orðið að selja með tapi þeim kaupanda, sem bezt bauð, en það var danski sjóherinn. Áminnti sölunefnd að lokum verzlunar- stjórana að gæta fyllstu hagsýni og spar semi í öllum rekstri verzlunarinnar og af- tók að sinna tillögum þeirra um viðgerðir á sumum verzlunarhúsunum, sem voru orðin allhrörleg. Þessar áminningar taldi hún sig nokkru síðar verða að árétta enn betur í sérstöku bréfi til Petersens og bað hann að minnast þess vel, hve mjög hag- ur verzlunarinnar og hagur hans færu saman, en fyrir þessu virtist hann ekki hafa gert sér næga grein. Þrátt fyrir þessa erfiðleika voru engar breytingar ráðgerðar á verzluninni fyrst um sinn. Heldur litlar horfur voru líka á því, að hægt yrði að fá nokkurn til að taka við Eyrarbakkaverzlun með viðun- andi kjörum fyrir sölunefnd, þar eð nú gerðist ábataminna að reka verzlun á Islandi en verið hafði um hríð. Sýndi hinn minnkandi áhugi fyrir íslandsverzl- uninni sig meðal annars í því, að kaup- sýslumenn frá Björgvin og Altona, sem sett höfðu upp útibú á ísafirði, Grundar- firði og Hafnarfirði, voru sem óðast að hverfa þaðan á brott. Sá þessara manna, sem átti útibúið í Hafnarfirði, hafði raun- ar lent í þjarki við sölunefnd, sem taldi honum skylt samkvæmt verzlunartilskip- unum að hafa einnig stöðuga verzlun í kaupstaðnum Reykjavík, en engu slíku var til að dreifa um eigendur útibúanna á Isafirði og Grundarfirði, af því að þeir staðir höfðu kaupstaðarréttindi. Það var, auk þeirra verðlagserfiðleika, sem getið er hér á undan, hin mikla eftirspurn stríðsþjóðanna eftir skipum hlutlausra þjóða til alls konar flutninga gegn gífur- lega hárri leigu, sem olli því aðallega, að þessir kaupsýslumenn hurfu á hrott frá Islandi. Hin almenna hækkun á skipaleigu kom að sjálfsögðu illa niður á Eyrarbakka- verzlun, þar eð óhjákvæmilegt var að taka að minnsta kosti eitt leiguskip þangað til viðbótar hinum tveim fyrrnefndu skipum Petersens. Og raunar hafði alltaf verið tiltölulega dýrt að nota leiguskip til Eyrarbakka sökum þess, hve höfnin þar var ótrygg og skipum því hætta búin, meðan þau höfðust þar við. Þennan kostnað hugðist sölunefnd nú spara sér árið 1794 með því að láta að minnsta kosti skútuna fara tvær ferðir það ár milli Kaupmannahafnar og Eyrarbakka. Með því að tryggingargjöld höfðu einnig hækkað vegna styrjaldarástandsins, ákvað nefndin að spara sér þann kostnað líka og tryggja hvorki skip né farma fremur en venja hafði verið í tíð konungsverzl- unarinnar. Á þetta þótti því fremur hætt- andi, sem skipin voru í mjög góðu lagi og áhafnirnar þaulvanar ferðum til Eyrar- bakka, enda þótt lagt væri allsnemma af stað um vorið. Þessi sparsemi reyndist þó borga sig heldur illa, því að seinna um sumarið bárust nefndinni þær fregnir í bréfi frá Ólafi stiftamtmanni, að bæði skipin hefðu farizt, skútan við strönd Vestur-Skaftafellssýslu, en duggan, er hún var komin inn á Eyrarhakkahöfn og bjóst til að varpa akkerum. Þær vörur, sem bjargazt höfðu úr skútunni, voru flestar skemmdar og höfðu verið seldar á uppboði á staðnum, en aftur á móti hafði mikið bjargazt óskemmt úr duggunni. Hér var um mjög tilfinnanlegt tjón að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.