Andvari - 01.06.1963, Síða 99
HERMAN M. WARD:
Skáldskapur Roberts Frost
íslcnzkur lesandi Roberts Frost rná vera þess fullviss, að hann er að lesa
ljóð eftir algjörlega amerískt skáld, því að mál Frosts er endurhljómur af hinum
létta samtalsstíl amerískrar ensku, og viðfangsefni hans eru tekin beint úr sveit-
um Nýja Englands; Massachusetts, Vermont og Nýja Hanrpshire. Ekki er heldur
hægt að greina nein augljós tengsl milli Roberts Frost og fyrri tíðar skálda.
Hann er frumlegur í snilld sinni og bundinn sinni móðurmold mjög traustum
böndum.
Þar sem Islendingar eru talsverðir sveitamenn, má ennfremur gera ráð
fyrir, að andi Frosts sé þeinr skyldari og hugþekkari en líkur eru til um önnur
amerísk skáld, til að mynda Ezra Pound og Wallace Stevens. Mörg ár ævi sinnar
var Frost nefnilega bóndi í Nýja Englandi, en þar er jarðvegur grýttur og
rysjótt veðrátta. Lífsbaráttan var þar hörð, og sigrar einstaklingsins yfir sífelldu
mótlæti sköpuðu alþýðleg hyggindi og hugrekki, sem hann tjáir í skáldskap
sínum.
Þá er þess að geta, að bragur Frosts er hefðbundinn. Hann leit á atóm-
skáldin með hógværri fyrirlitningu. Hann sagði eitt sinn, að sér virtist senr
„órímuð ljóð væru því líkust, að leikið væri tennis með netið niðri“. Ljóð sjálfs
hans eru venjulega rímuð erindi eða órímaður, öfugur tvíliður í fimm bragliða
vísuorði, báttur Wordworths, Miltons og Shakespeares. I þessi form greypti hann
sérstætt ljóðmál, sem enn er spegilmynd af daglegu tali í Nýja Englandi.
Enda þótt Robert Frost væri fæddur í San Francisco í Kaliforníu og gefið
af föður sínum (hliðhollum Suðurríkjunum) nafnið Robert Lee Frost eftir
hinum mikla herforingja Suðurríkjanna, er hann í huga Ameríkumanna óað-
skiljanlega tengdur Nýja Englandi. Eftir að faðir hans dó frá honum ungum,
sneri móðir hans aftur til Massachusetts, þar sem hún hafði ofan af fyrir sér
og börnurn sínum með kennslu. Robert sonur hennar las mjög lítið til fjórtán
ára aldurs; þá varð hann allt í einu ágætur nemandi. Þegar að því kom, að
hann útskrifaðist, var hann efstur í sínum bekk. Svo vildi þó til, að annar
nemandi var líka efstur í bekknum. Það var stúlka, Elinor Miriam White að
7