Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1963, Síða 100

Andvari - 01.06.1963, Síða 100
98 HERMAN M. WARD ANDVARI nafni. Skólastjórnin úrskurðaði, að Robert skyldi i’lytja velfarnaðarminnið, hina venjulegu kveðjuræðu. Elinor hefur samt að líkindum átt síðasta orði,ð. Þau gengu í hjónaband þremur árum síðar. Ur menntaskólanum fór Frost í Dartmouth háskólann, en dvaldi þar aðeins nokkra mánuði. Námsstaglið þar varð honum leiðigjarnt um of. Hann sneri heim og hjálpaði móður sinni við skólakennsluna, vann það, sem til féll, og orti. Þegar hann var tuttugu og tveggja ára, áskotnuðust honum 15 dalir fyrir fyrsta ljóðið, sem hann sendi tímariti til birtingar. „Þetta er létt verk,“ sagði hann og ráðgerði að yrkja eitt Ijóð á viku. „En,“ bætti hann við síðar, „næsta ávísun lét lengi standa á sér.“ Tuttugu og tveggja ára gamall sneri hann aftur til háskólanáms, í þetta sinn til Harvard um tveggja ára skeið, þar sem honum gekk ágætlega í grísku. Hann fór þaðan próflaus. (Mörgum árum síðar átti Harvard eftir að veita honum nafn- hót heiðursdoktors). Nú fór hann með konu sína og tvö börn til Derry í Nýja Hampshire, þar sem afi hans hafði gefið honum jörð með því skilyrði, að hann byggi þar í tíu ár. Frost efndi loforð sitt, en liann hafði annað í huga. Eftir ellefu ár reyttu þau hjónin saman allt það fé, sem þau máttu, seldu jörðina og héldu til Englands. Einnig þar fengust þau við búskap, en meiri þýðingu hafði það, að þar komust þau í samband við önnur skáld og útgefanda, sem féllst á að gefa út ljóð Frosts. Þegar hér var komið sögu hans, höfðu tuttugu ára ritstörf gefið honum í aðra hönd kringum 200 dali, — sem vissulega var enginn lífeyrir. Flest ljóð hans liöfðu amerísku tímaritin endursent. í Englandi safnaði hann saman ljóðum sínum 1913, valdi úr þeim og gaf þau út í bók, er hann nefndi „A Boys Will“ (Llngs manns erfðaskrá). Gagnrýnendur brezku blaðanna tóku bókinni með fögnuði. Önnur bók, „North of Boston“ (Norðan við Boston), kom út ári síðar. Frost hafði samt engan hagnað af þessum tveimur bókum, og þar eð heims- styrjöldin fyrri var hafin, fór hann með fjölskyldu sína aftur til Bandaríkjanna. Þegar hann kom til New York bókstaflega auralaus, vildi svo til, að hann fletti þar tímariti, sem hét New Republic, og þar var eitt af Ijóðum hans prentað með leyfi Henry Elolt og Co. Hann kannaðist ekkert við þennan forleggjara og fór á fund ritstjórans til að leita skýringar á þessu. Hinn síðarnefndi var svo vinsamlegur að láta honum í té peninga, sem nægðu til að hann gæti komizt með fjölskyldu sína til Nýja Englands. Áður en árið var liðið, höfðu Frost borizt margar beiðnir um fyrirlestra, og ljóð hans tóku að seljast. I raun réttri skipaði Frost þrjár stöður um ævina. Hann var bóndi, kennari og skáld; hann hélt öllum þessum störfum áfram til dauðadags, í janúar 1963. í æsku lagði hann á sig mikið erfiði, er hann reyndi að draga fram lífið af snauðri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.