Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1966, Side 31

Andvari - 01.06.1966, Side 31
ANDVARI ÓLAFUR THORS 29 Þegar fyrrv. forsætisráðherra, Hermann Jónasson, ritaði formanni Sjálf- stæSisflokhsins bréf, dags. 15. apríl síSastl., og tjáSi honum, aS ráSherrar Fram- sóknarflokksins mundu fara úr ríkisstjórninni, ef felld yrSi tillaga sú til rök- studdrar dagskrár, sem Framsóknarflokkurinn mundi bera fram til stöSvunar stjórnarskrármálsins viS 2. umræSu þess máls, og þegar sýnt var, aS stjórnar- skrárbreytingin átti svo mikiS þingfylgi, aS dagskrá þessi hlaut aS falla, var hafizt handa um undirbúning þess, aS mynduð yrSi ríkisstjórn, sem fylgt gæti fram stjórnarskrárbreytingunni og fariS meS önnur mál, er fyrir liggja. Var þá sérstaklega um tvær leiSir að ræða: Að mynduð yrði samsteypustjórn einhverra þeirra flokka, er að málinu stóðu, eSa aS fjölmennasti flokkurinn, SjálfstæSisflokkurinn, myndaði einn stjóm. Sjálfstæðisflokkurinn kaus síðari kostinn í því trausti, að innan þingsins sé og muni verða nægilega mikið fylgi við stjórnarskrárbreytinguna, til þess að afstýra vantrausti á þá ríkisstjórn, sem mynduð er til þess að fylgja þessu máli fram til fullnaðarsamþykktar. Stjóm sú, er nú tekur við völdum, er stjóm Sjálfstæðisflokksins í þeim skilningi, að hana skipa eingöngu Sjálfstæðismenn. Hins vegar hefur hún ekki þá aðstöðu flokksstjórnar að vera bær urn að framkvæma þau stefnu- og hug- sjónamál Sjálfstæðisflokksins, sem ekki njóta stuðnings annarra flokka, þar eð Sjálfstæðismenn eru nú sem kunnugt er aðeins 16 á þingi, af alls 47 mönnum, er nú eiga þar sæti. Fllutverk stjómarinnar verður því fyrst og fremst það tvennt, að sjá far- borða máli því, er stjórnarskiptum hefur valdið -— stjómarskrármálinu —, og að inna af hendi það höfuSverkefni undanfarinna ríkisstjóma að verja þjóðina gegn áföllum á þessum einstæðu og örðugu tímum, framfylgja lögum og ann- ast daglega afgreiðslu þeirra mála, er á hverjum tíma koma til úrskurðar og framkvæmda sérhverrar ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin mun samkvæmt eðli málsins ekki telja sig bæra um að taka upp eða fylgja fram nýjum ágreiningsmálum, meðan stjómarskrármálið er til meðferðar, nema hún telji óumflýjanlega þjóðarnauðsyn til bera. Þegar stjómarskrármálið hefur náð samþykki þess Alþingis, er nú situr, mun þing tafarlaust verða rofið, svo sem 75. gr. stjórnarskrárinnar mælir fyrir um, og stofnað til kosninga svo fljótt sem auðið er, væntanlega í júnílok eða byrjun júlímánaSar næstkomandi. Hið nýja þing mun síðan kvatt saman svo fljótt á þessu sumri sem kostur er á. Mun stjómarskrárbreyting verða lögð fyrir það þing á ný, og verði hún þá samþykkt þar, verður það þing aS sjálfsögðu rofið og stofnað til nýrra kosninga, væntanlega á næsta hausti, eftir ákvæðum hinnar nýju stjómarskrár.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.