Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1966, Page 32

Andvari - 01.06.1966, Page 32
30 BJARNI BENEDIKTSSON ANDVARI Þá er það vilji stjórnarinnar, að skipuð verði milliþinganefnd, er semji frumvarp til laga að nýrri stjómarskrárbreytingu, og gefist þá Alþingi kostur á að ganga endanlega frá sjálfstæðismálum þjóðarinnar í samræmi við áður gefnar yfirlýsingar Alþingis í þeim efnum, þannig að stofnað verði lýðveldi á íslandi." í framhaldi þessa fóru fram tvennar alþingiskosningar á árinu 1942. Við hinar fyrri hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 39.5% atkvæða og 17 þingmenn kosna, Framsóknarflokkurinn 27.6% atkvæða og 20 þingmenn kosna, Sósíalistaflokk- urinn 16.2% og 6 þingmenn kosna og Alþýðuflokkurinn 15.4% og 6 þingmenn kosna. Þjóðveldismenn fengu 1.1% og Frjálslyndir vinstri menn 0.2%, og hvor- ugir nokkurn þingmann kosinn. I haustkosningunum hlaut Sjálfstæðisflokkur- inn 38.5% atkvæða og 20 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 26.6% og 15 þing- menn, Sósíalistaflokkurinn 18.5% og 10 þingmenn, Alþýðuflokkurinn 14.2% og 7 þingmenn, Þjóðveldisflokkurinn 2.2% og engan þingmann. Sumarið 1942 gerðist það, að Árni Jónsson frá Múla, skólabróðir Olafs og fornvinur, varð viðskila við Sjálfstæðisflokkinn. Árni hafði verið þingmaður árin 1937—1942 og taldi sig öruggan um að hljóta þingsæti í annarri hvorri Múlasýslu eftir að hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum hefðu verið lög- leiddar. Kosningaúrslitin um sumarið, þegar Árni bauð sig fram í Suður-Múla- sýslu, sýndu hins vegar, að þetta var mjög á mörkum. Auk þess sótti Ámi fast eftir stöðu, sem ráðherrar flokksins töldu sér ekki fært að veita honum. Af öllu þessu blossaði upp þykkja í þeirra garð. Ámi hætti við framboð á Austur- landi og sótti eftir því að komast á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við haustkosningarnar. Þegar hann reyndist ekki hafa fylgi í kjörnefnd flokksfélag- anna þar, hvarf hann í lið með hinum svokölluðu Þjóðveldismönnum, sem boðið höfðu fram þá um vorið. Ekki hafði þetta verulega stjórnmálaþýðingu, en varð öllum aðilum til leiðinda eins og verða vill, þegar ósátt kemur upp milli þeirra, sem lengi hafa unnið saman. Þetta sumar, 1942, varð Ólafi Thors að ýmsu leyti örðugt. Þar sem ófrið- urinn dróst á langinn hafði í meginatriðum náðst samkomulag um að nota nauðsynlegt þinghald um sumarið 1942 og seinni kosningar, sem leiddu af kjördæmabreytingunni, til þess að lögfesta með stjómarskrárbreytingu lýðveldis- stofnun. En þá blönduðu Bandaríkjamenn sér í málið, og varð það úr, eftir að orðsendingar höfðu farið á milli og viðræður átt sér stað, að endanlegar ákvarð- anir um lýðveldisstofnun skyldu ekki gerðar fyrr en eftir árslok 1943, þegar einhliða uppsögn sambandslaganna var heimil samkvæmt ákvæðum þeirra sjálfra. Jafnframt var þá gerð önnur breyting á stjórnarskránni, sem staðfest var 16. desember 1942, og var það síðasta stjórnarathöfn Ólafs Thors að því sinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.