Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1966, Page 88

Andvari - 01.06.1966, Page 88
86 SVERRIR KRISTJÁNSSON ANDVARI eírðarlausa athafnasemi þýzku lágstétt- anna á næstu mánuðum, á götum úti og á mannfundum, í blöðum og flugritum, veldur því, að hin menntaða borgarastétt Þýzkalands tekur að óttast afleiðingar róttækrar byltingar, hún veit ekki hvað upp kann að koma, ef plógjárn byltingar- innar ristir svörðinn dýpra. Hún gerist deigari í kröfum, aðhæfir stefnu sína hagsmunum og sjónarmiðum hinna gömlu valdhafa, leitar jafnvel aðstoðar þeirra til þess að halda í skefjum þeim lýð, sem byltingin hefur ýtt út á framsvið leikvangsins. 1 þessum efnum birtist veila þýzku byltingarinnar, hálfvelgjan og hálfleikinn, sem varð henni að lokum að fjörtjóni, er hún stóð frammi fyrir and- stæðingum, sem einskis svifust þegar um var að tefla pólitíska og efnahagslega til- veru þeirra. Þegar litið er á rás þýzku byltingar- innar, þá vekur það mesta furðu, hve fyrstu sigrar hennar voru auðunnir, hve góðfúslega 34 þjóðhöfðingjar af guðs náð afsöluðu sér einveldi og gengu að öllum kröfum byltingarmanna. Þessir furstar sem árum saman höfðu ofsótt og hundelt hvern vesælan stúdent, er gerðist svo djarfur að bera þá fánaliti, sem voru tákn hins frjálsa og sameinaða föðurlands, báru nú sjálfir þessa liti með höfðinglegu stolti. A þeirri stundu voru engir þýzkari en þeir, fáir frjálslyndari. Damals lagen wir alle auf dem Bauche — þá lágum við allir hundflatir, sagði Friðrik Vilhjálmur IV. þegar byltingin var um garð gengin, er hann lýsti hegðun sjálfs sín og stéttar- bræðra sinna á byltingarárunum. Áður en marzmánuður var liðinn hafði byltingin sigrað í öllum ríkjum Þýzka- lands í fyrstu lotu og á yfirborðinu. Þá hafði verið gengið að hinum svokölluðu marzkröfum, sem fóru allar fram á prent- frelsi, kviðdóma, hervæðingu fólksins og alþýzkt þing. Hið sögulega drama þýzku byltingarinnar gerðist síðan í þremur höfuðþáttum: einn þátturinn fer fram í Frankfurt am Main, annar í Vín, sá þriðji í Berlín. I Frankfurt am Main settist þýzki þjóðfundurinn á rökstóla 18. maí, kosinn almennum kosningum, fullvalda löggjaf- arstofnun, sem hafði raunar engan annan réttargrundvöll en byltinguna sjálfa. Þar sat enn hið gamla Sambandsþing Þýzka ríkjabandalagsins og reyndi þótt gamalt væri og stirt að stíga dansinn eftir hljóm- sprota byltingarinnar. Hinn 12. júlí lagði Sambandsþingið niður völd, og Þjóðfund- inn sat einn eftir í hinni gömlu ríkisborg með löggjafarvaldi yfir öllu Þýzkalandi í hendi sér. Þjóðfundurinn útnefnir fram- kvæmdarvakþ gerir Jóhann erkihertoga af Austurríki að ríkisstjóra, en hann skip- aði síðan ráðherra í ríkisstjórn, er báru ábyrgð fyrir Þjóðfundinum. Á þessum Þjóðfundi voru á fimmta hundrað þing- fulltrúar, þar á meðal eitt hundrað pró- fessorar. Án efa mun vera leitun á lög- gjafarsamkomu í allri sögunni, þar sem saman var komið slíkt andríki og lærdómur og í Pálskirkjunni í Frankfurt, og aldrei hafa lengri og vísindalegri rökræður verið háðar en þar. Aðalverkefni Þjóðfundar- ins var að sjálfsögðu að semja stjórnar- skrá handa þýzka ríkinu og lögfesta þau mannréttindi, er þegnar þess skyldu njóta. í lok marzmánaðar 1849 höfðu hinir lærðu herrar Þjóðfundarins loks komizt að endanlegri niðurstöðu um stjómarskrá hins þýzka ríkis: samkvæmt henni skyldu hin einstöku þýzku ríki ekki afnumin, hcldur eiga fulltrúa í efri deild ríkis- þingsins, en til neðri deildar þess skyldi kosið almennum kosningarrétti. Þjóðhöfð- ingi þessa ríkis skyldi bera keisaranafn, og þjóðfundurinn samþykkti að bjóða Friðriki Vilhjálmi IV. keisarakórónuna,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.