Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1966, Side 112

Andvari - 01.06.1966, Side 112
110 ÞORVALDUR SÆMUNDSSON ANDVARI VII Einn a£ höfuðsnillingum íslenzkrar ljóðagerðar á fyrrihluta 19. aldar, Bjarni Thorarensen, var ungur settur til mennta og reyndist flugskarpur námsmaður. Ungur mun hann hafa byrjað að yrkja, þótt fátt hafi varðveitzt eftir hann frá æskuárunum. Atján ára mun hann hafa verið, er hann orti kvæðið alkunna, Eld- gamla ísafold. Bendir það til þess, að hann hafi á skólaárum sínum fengizt allmikið við ljóðagerð og snemma orðið fullþroska skáld, þótt hátindi listar sinn- ar næði hann með kvæðinu um Odd Hjaltalín, sem hann orti 1840, árið áð- ur en hann lézt. Sagt er að Bjarni og Hallgrímur Scheving, síðar kennari á Bessastöðum, hafi verið mjög samrýmdir á Hafnarárunum, lesið skáldskap saman og ort báðir. Talið er að Bjarni hafi borið kvæði sín undir Hallgrím bæði þá og síðar, enda var 'Hallgrímur einn mesti mál- snillingur, sem uppi var á 19. öld. Hefur sálufélagið við hann og fleiri, svo sem Sveinbjörn Egilsson, verið skáldinu mikill ávinningur, bæði á Hafnarárunum og síðar, eftir að heim til íslands kom. Ein fyrsta vísan, sem Bjarna er eignuð, og talið er að hann hafi ort mjög ungur, var um Ólaf nokkurn Loftsson, sem fædd- ur var í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð 1783. Hafa þeir alizt upp samtímis 1 Fljótshlíðinni hann og Bjarni og verið á líku reki, Bjarni þó nokkrum árum yngri, fæddur 1786. Ólafur þ essi mun hafa verið í meira lagi baldinn í æsku. Hafa þeir sjálfsagt oft átt í brösum, eins og drengjum er títt. Sennilega hefur Ólafur leikið Bjarna allgrátt á stundum, eins og þessi vísa Bjarna virðist benda til: Ef eg væri amtmaður, eða sæti í dómarastétt, Ólafur Loftsson eitraður af mér skyldi fá sinn rétt. Sýnilega er efst í huga sýslumanns- sonarins unga löngunin að geta jafnað um hinn illvíga leikbróður sinn með sverði laga og réttar. Atti sú ósk hans að beita því vopni og eftir að rætast eftirminnilega, þótt aldrei hlyti Ólafur þessi að þola dóm hins stranga og siða- vanda yfirdómara og síðar amtmanns. Síðar á ævinni þótti Bjarni beita sverði laganna helzt til óvægilega á stundum. En það er önnur saga. Um Ólaf Loftsson, sem þarna kemur við sögu Bjarna, er annars það að segja, að hann mun hafa verið góðum gáfum gæddur, en gallagripur á ýmsa lund. Hann stundaði nám í Reykjavíkurskóla 1800—1804. Lagði síðan stund á læknis- fræði, fyrst hjá Klog landlækni, en hélt síðan utan til framhaldsnáms. Lenti hann þá í hrakningum, komst þó til Skotlands og kynntist þar skozka lækninum og vís- indamanninum Mackenzie. Árið 1810 kom Mackenzie til Islands ásamt lækn- unum dr. R. Bright og H. Holland, og ferðuðust þeir víða um vestan lands og sunnan í rannsóknaskyni. Var þá Ólafur Loftsson í för með þeim sem túlkur og leiðsögumaður. Slitnaði þó brátt upp úr vinskap þeirra ólafs og Mackenzies. Fór Ólafur utan tveimur árum síðar og flækt- ist víða, varð t. d. aðstoðarlæknir á her- skipi í Ameríku, og höfðu menn þar síð- ast spurnir af honum árið 1815. Má nán- ar um hann lesa í ferðabók FI. Hollands, Dagbók í íslandsferð 1810. VIII Sagt er, að Hjálmar Jónsson, sem kenndur var við Bólu, hafi verið ungur, aðeins sex ára, þegar hann gerði hina eftirminnilegu og snjöllu vísu um Hal- lands-Möngu vinnukonuna, sem flutti hann næturgamlan í poka að Dálksstöð- um í Svalbarðsstrandarhreppi, þar sem húsgangsferill þessa unga einstæðings
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.