Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 53

Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 53
andvari ÓBÓTAVERKIÐ 51 elliær. Dag nokkurn sást hún vera að berja arfasátu með lurk og kallaði hana „vesluga”. Þegar hún var spurð, hverju þetta sætti, svaraði hún, að sátan mundi verða notuð til að kveikja í húsunum, þegar allir yrðu inni brenndir, og beiddist, að hún yrði borin á vatn eða brennd hið bráðasta. Gamla konan kann að hafa verið geggjuð, en vissulega var heilbrigð skyn- semi í því, sem hún lagði til, og hún reyndist betur að sér í hernaðarlist en Skarpheðinn, sem ekki gerði annað en hlæja að henni, og sagði, að eitthvað ann- að mundi finnast til að kveikja með eld, ef slíkt væri fyrirfram ákveðið, jafnvel þótt sátan væri þar ekki. Vér undrumst nú þessa örlagabundnu, skipulagslausu eða blátt áfram tilviljunar- kenndu afstöðu Skarpheðins og annarra. Njáll og synir hans vissu af skynsemi sinni, orðrómi og upplýsingum Hróðnýjar, að á þá yrði ráðizt, þó þeir vissu ekki nákvæmlega hvenær. En þeir virðast ekki hafa gert neitt sérstakt til að skipuleggja varnir sínar. A hinn bóginn höfum vér þegar séð, að FIosi hafði enga ákveðna fyrirætlun um það, hvernig árásinni yrði hagað, þegar hann og menn hans kæmu loks að Berþórshvoli. Þetta var að nokkru leyti sú norræna örlagatrú, að ekki yrði spornaÖ við því, sem fram ætti að koma. Norrænir menn höfðu litla fyrirhyggju °g ráðagerðir og alls ekki að því er bar- daga snerti, þó að athyglisverðar undan- tekningar finnist eins og Njáll. Fyrir þeim var eina meginregla bardagans að greiða harðari og skjótari högg en and- stæðingurinn. Undantekningin frá því var eins konar dásamleg tilviljun, eins °g þegar Skarpheðinn renndi sér eftir tsnum til að drepa Þráin. Að tilteknum degi og stundu reið Flosi að austan með menn sína til mótsins. Þar v°ru allir komnir, sem eiðum höfðu bundizt, nema Ingjaldur, sem hafði rofið eið sinn til þess að halda loforð sitt við Hróðnýju að taka ekki þátt í árásinni. Um það leyti, sem þeir voru að safnast saman, voru bræður Skarpheðins, Grímur og I lelgi, að heiman. Hundrað og tuttugu manna fundi varð ekki haldiÖ leyndum, og fregnir bárust bræðrunum, sem hröð- uðu ferð sinni þegar í stað heim að Berg- þórshvoli. Þetta kvöld hlýtur að hafa reynt mjög á Njál og fólk hans, því að allir vissu, að nú var árásin yfirvofandi, og Bergþóra sagði skýrt og skorinort, að hver og einn skyldi velja sér mat, því að þetta yrði í síðasta sinn sem hún skammtaÖi heimilis- fólki sínu. Einnig Njáll sá í sýn, að húsgaflinn hrundi og allt borðið var atað blóði. I þessu dapra umhverfi var það Skarpheðinn, sem sagði öllum að bera sig vel og minnti á, að til þess væri ætlazt af þeim öðrum fremur. Skarpheðinn var greinilega einn þeirra manna, sem léttir í skapi við hættur, eins og þegar hann klæddist viðhafnarklæðum sínum áður en hann fór að Þráni. Áður en lagt var af stað, lét Flosi menn sína ganga til kirkju og biðjast fyrir. Fróðlegt væri að vita, hvers þeir báðu, sigurs, fyrirgefningar eða hvors tveggja? Þá riðu þeir að Bergþórshvoli, bundu hesta sína í hvarfi við bæinn og biðu þar til myrkurs. Þá gengu þeir i átt til bæjarins hægt og í þéttum hóp að skipun Flosa. Flosi játaði, að þetta væri gert til þess að sjá, hvað Njáll og menn hans tækju til bragðs. Sjálfur hafði hann ekki enn neina ákveðna fyrirætlun. Njáll og synir hans og Kári og allir vígir menn á bænum komu út og stóðu í fylkingu á hlaÖinu. Þá nam Flosi staðar og hugleiddi, hvað til bragðs skyldi taka. Honum var alls ekki um að ráðast á heimamenn, meðan þeir væru á opnu svæði. Þessi tregða til árásar virðist undarleg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.