Andvari - 01.05.1967, Qupperneq 63
andvari
ÓBÓTAVERKIÐ
61
vclviljaður, en óþolinmóður, maðurinn,
sem ekki hefur bjargfasta trú á þjóSfélags-
umhótum. Ef hann ris upp í veröld vorri,
er afl hans margfaldaS meS milljónum,
en vandamál hans hiS sama í grund-
vallaratriSum. Líklegt er, að hann leiSi
ennþá flokksmenn sína í kirkju, áður en
hann heldur af stað að Bergþórshvoli í
örvæntingartilraun til að sanna, að hann
fremji glæp samkvæmt lögmáli. En í það
sinn fellur brennandi húsiS yfir eitthvaS
meira en Njál og fólk hans.
Andrés Björnsson þýddi.
Árið 1964 kom út hjá forlagi Hutchinsons í London allnýstárleg bók,
sem nefnist á frummálinu: Fatal Fascination, til skýringar heitinu er undir-
titill; úrval afbrotasagna. Forlagið fékk fjóra kunna, brezka rithöfunda,
er völdu sér að rita um afbrotamenn eða ódáðaverk. Enginn höfundanna
er sérfræðingur í þessari grein.
Rithöfundurinn Nigel Balchin valdi sér að viðfangsefni Brennu-Njáls
sögu. Fer ritgerð hann hér á undan í íslenzkri þýðingu. Ástæða er til að
taka fram. að þess gætir nokkuð, að höfundur greinarinnar er útlendingur
og ekki fræðimaður og virðist ekki þekkja kenningar um uppruna sög-
unnar, enda koma þær meginefni greinarinnar ekki við.
Nigel Balchin er fæddur árið 1908. Hlaut hann menntun sína í Cam-
bridge og var á stríðsárunum 1939 — 45 ráðunautur hersins í vísindalegum
efnum. Balchin sneri sér ungur að ritstörfum. Fyrsta bók hans kom út
1933, en alls munu vera til frá hendi hans um tuttugu sjálfstæð rit, flest
skáldsögur og eitt leikrit, en lítt munu verk hans þekkt hér á landi.