Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1967, Side 64

Andvari - 01.05.1967, Side 64
GYLFI Þ. GlSLASON: Sigurður Nordal áttræður Ræða menntamálaráðherru, flutt í afmælishófi, höldnu til heiðurs dr. Sig- urði Nordal prófessor á áttræðisafmæli hans, 14. september 1966. 1 riti sínu „Líf og dauði“ segir Sigurð- ur Nordal: „Við erum og verðum það, sem við hugsum. . . . Munurinn á vitrum manni og heimskum er oft alls ekki 'fólginn í ásköpuðu gáfnafari, heldur í því, að ann- ar stefnir á brattann í hugsunum sínum, en hinn vafrar um í þoku sinnuleysis og verður vinglaður á því að elta skottið á sjálfum sér. . . . Hugsun er máttur. A einni stuttri stundu, sem við horfum berum augum á undur mannlegra örlaga, geta sprottið upp lindir í hug og hjarta — og ýmiss konar þekking, sem áður var visin og dauð, orðið lifandi og starf- andi þáttur í vilja okkar og breytni. Listin að lifa, hin erfiðasta, nauðsynlegasta og æðsta list allra lista, er framar öllu listin að hugsa, að hugsa frjálslega, af ein- lægni, djöífung og alvöru.“ Mér er til efs, að nokkur maður, sem nú er uppi með íslendingum, hafi hugsað meira og dýpra en sá maður, sem við höfum hitzt hér til að heiðra vegna áttræð- isafmælis hans, Sigurður Nordal. Enginn nema hann sjálfur veit, hvert gildi hugs- un hans hefur haft fyrir sjálfan hann. En við hin vitum, hvert gildi hún hefur haft fvrir okkur, fyrir Islendinga og alla þá menn erlendis, er látið hafa sig það, sem íslenzkt er, einhverju varða. Og þó er ég í raun og veru ekki viss um, að við gerum okkur að fullu ljóst, hversu áhrifa- rík hugsun Sigurðar Nordals hefur verið á ýmsum sviðum. Svo er um áhrif mikilla manna, að oft á tíðum finnst öllum þau nýju viðhorf, sem þeir valda, svo sjálf- sögð, að það gleymist, sem áður var al- menn skoðun. Sigurður Nordal hefur hugsað um flesta hluti, en mest að sjálfsögðu um ís- lenzk fræði. Afrek hans á því sviði eiga eflaust rót sína að rekja til þess, að hann hefur ekki aðeins fjallað um þau sem vísindamaður, heldur einnig sem lista- maður. Mikill vísindamaður vex af því, ef hann er jafnframt listamaður. Og mikil list fágast, ef listamaðurinn agar hugsun sína í samræmi við lögmál vís- inda. Listsnauðum vísindum er hætt við að verða ófrjó, — staðna. Rakalaus list verður gjarna ósönn, dauð. Það er lista- maðurinn í Sigurði Nordal, sem gert hefur hann að miklum vísindamanni, og vísindamaðurinn í honum, sem gert hefur hann að mi'klum listamanni. Kjarni hugsunar Sigurðar Nordals um íslenzk fræði og skáldskapur hans er þó meira en hrein vísindastörf og skáld- skapariðja. Hann hefur sagt um bók sína, „Islenzka menningu", að hún sé „hugleiðing um vanda þess og vegsemd að vera Islendingur nú á dögum“. En mér virðist hún og önnur rit Sigurðar Nor- dals vera enn meira. Þau eru hugleiðing um vanda þess og vegsemd að vera maður. Er manni nokkuð nauðsynlegra en að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.