Andvari

Árgangur

Andvari - 01.05.1967, Síða 73

Andvari - 01.05.1967, Síða 73
ANDVABI HERMAN MELVILLE OG MOBY-DICK 71 ekki minni maður skrifað en Rudyard Kipling. Þar hrósar Kipling Bullen fyrir að hafa fyrstur leitt hvalveiðar inn í bók- menntirnar. Þetta var um það bil 40 árum eftir að ,,Moby-Diek‘' kom út. Skáldsaga Melvilles var gleymd í hinum enskumæl- andi heimi. Ef svo hefði ekki verið mundi höfundur „Hinna sjö hafa“ áreiðanlega hafa minnzt á hana. Þó get eg ekki losað mig við þá hug- mynd, að Frank Bullen hafi lesiS Mel- ville. Stíll hans er meS öðrum hætti, hann hefur ekki til að bera hina miklu tilburði Melvilles, heldur ekki efnismagnið í raun- sæinu, en þaS er sumt sem minnir á hann, og sá lesari, sem er á skipi Bullens, getur einstaka sinnum fundið á sér, að glæsilegri gnoð, Hollendingurinn fljúg- andi, siglir í kjölfarinu. Það er þá Herman Melville, sem er fremstur allra. A hinni einu sælustund snilligáfu hans, á einu sköpunarári, segir hann í eitt skipti fyrir öll frá hvalveiðun- um svo sem þær voru áður en skutlinum var hleypt úr fallbyssu og hvalveiðararnir urðu að fara á bát í minna en tíu metra færi við hvalinn svo að hægt væri að kasta skutli af hendi. Það er víst einnig svo, að í skáldsögu Melvilles verður „hið karlmennskulega" haf í fyrsta skipti í seinni tíma bókmennt- um að sjálfstæðum og tröllviðum heimi, en hafði lengi ekki veriS annað en leik- rænt útsýni. ÞaS er í fyrsta skipti að sag- an fer fram í fullri alvöru á hafinu einu. Mennirnir sem hún fjallar um eru svo bundnir öldugrunninu, að þegar þeir reyna að þætta saman lausa kaðalsenda lífs síns, sækja þeir tjáningar í eðli hafs- ins, en þurrlendið, sem þeir þrá og flýja fljótt aftur, er ekkert nema birta, friður, ekki af jarðneskum heimi. En sjórinn er þeirra lifsákvörðun og þeir koma aðeins að landi til að tímgast eins og selirnir. AS Melville liSnum hafa örfáir rit- höfundar skynjað hafiS á þessa lund, nefna verður hinn myrka tvíræða Joseph Conrad, brezkt skáld, Pólverja að ætt. Farmannaþjóðir eiga fáa menn, er segja frá hafinu, þótt undarlegt sé, NorSur- landabúar eru sérstaklega snauðir í þess- um efnum. En svo hefur ekki alltaf verið, og einkennilegt er það, að í rauninni telur Melville hina fornu Norðurlandabúa vera sína sönnu forvera sem sjómenn, hvalveiðara og sagnaskáld. Melville skyggnist sem sé langt aftur í tímann þegar hann leitar að fyrirrenn- urum sinum, það er Hómer og fornsög- urnar. Auðsætt er, að hann telur að þar megi finna ýmislegt, sem heyrir undir nýrri alda sögu. Haf Hómers og haf fornsagnanna voru máttarvöld, þau voru æði sundurleit, en regin voru í báðum, Ránardætur syntu með hrímgað hár, er Nereiðurnar skreyttu hadd sinn blómum. En Melville gat ekki heldur lýst mætti og lögmáli hafsins án þess að líta þar guði. Þeir eru greinilegir og þeir eru gæddir geysilegu afli, en eðli þeirra verður illa greint og þeir eiga sér ekki nöfn að hætti sjávarguða Hómers og Norðurlandabúa, en þau nöfn voru í þann tið öllum skiljanleg. AS vísu ber voldugasti sjávarguð Melvilles nafn, amer- ísku hvalfangararnir kölluðu hann Moby- Dick. Hann birtist í líki hins þjóðsagna- kennda hvíta búrhvelis, sem Akab skip- stjóri eltir og býður öllum höfuðskepnum birginn. En Moby-Dick er nú einskonar dulnefni. Menn verða að þekkja hiS dul- vísa eðli hafsins og lífshættulegan starfa hvalveiðimannanna, skelfingu þeirra og trú, til þess að komast að því, hvað Moby- Dick þýðir. Melville hefur þó annað nafn á hvaln- um, hann kallar hann Leviatan. Hann notar það sem samheiti um búrhvelin, konungsættina í ríki hinna stórvöxnu sjókinda. Það táknar þó framar öllu öðru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.