Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1967, Side 86

Andvari - 01.05.1967, Side 86
84 ÞÓRÐUR EINARSSON ANDVARl II og drottninguna Nefertari. Nú hafa þessi risastóru listaverk verið bútuð sund- ur og síðan flutt þaSan, sem þau höfðu staðið árþúsundum saman og endurbyggð á óhultum stað, nokkur hundruð metra frá stíflunni. Er þaS án efa umfangs- mesta verkefni, sem nokkru sinni hefur verið ráSizt í til björgunar menningar- verðmætum. Loks skal þess getíð, að á undanförn- um 10 árum hafa tveir hópar sérfræð- inga á vegum Unesco gert mjófilmur af 4 milljónum blaðsíSna verSmætra bóka og skjala, sem geymd eru í skjala- og bókasöfnum 15 landa. Þetta fremur lauslega yfirlit um starf- semi Menningarmálastofnunar Samein- uSu þjóSanna er nú orðið alllangt, en þó hefur einungis verið minnzt á fátt eitt af þeim fjölmörgu merkilegu verkefn- um, sem stofnunin vinnur að víðs vegar um heim, og lítt eða ekki rætt um tvö mikilvæg starfssvið, sem sé andleg tengsl eða fjarskipti hverskonar (communica- tions) og félagsfræðileg málefni, sem Unesco hefur einnig látiS sig miklu skipta. Á s. 1. vori störfuðu samtals 1.067 starfsmenn á vegum Unesco í 90 lönd- um, en 810 þeirra voru sérfræðingar á sviði skóla- og menntamála, hagfræðing- ar, raunvísindamenn, fornleifafræðingar, sagnfræðingar, bókaverðir o. s frv. Sam- tímis taldi starfslið Unesco í aSalstöðv- unum í París 635 manns. Eins og áður segir ræður Unesco jafnan töluverðan fjölda sérfræðinga á ýmsum sviðum til starfa á sínum vegum víðs vegar um heim og til misjafnlega langs tíma. Er í því sambandi engin fjarstæða að ætla, nú þegar ísland er orðinn aðili að Unesco, að íslenzkir sérfræðingar í ýmsum greinum geti ráðizt til starfa takmarkaðan tíma á vegum stofnunarinn- ar. Væri slíkt af ýmsum ástæðum mjög æskilegt, og við þaS myndi vinnast tvennt. I fyrsta lagi gætu þessir Islendingar á þann hátt miðlað af menntun sinni og sérfræðilegri þekkingu til 'framdráttar þeim málum, sem Unesco vinnur að, en á hinn bóginn gætu þeir með þessu móti aflað sér dýrmætrar reynslu, sem síðar getur komið að góðum notum við störf hér á landi. Væri þetta e. t. v. sá skerfur, sem mikilvægastur gæti talizt af hálfu íslands til framdráttar þeim verkefnum, sem Unesco vinnur að. Enda þótt hér hafi verið minnzt á ýmis- legt í þeirri fjölbreyttu og víðtæku starf- semi, sem Unesco befur með höndum til framdrátta,r vísindum, mennta- og menningarmálum í heiminum, þá er þó eftir að geta þess markmiðs, sem stefnt er að með öllu þessu, en það er eitt og hið sama hjá öllum þeim stofnunum og sam- tökum, sem mynda fjölskyldu SameinuSu þjóðanna. Höfuðmarkmið Unesco er ekki tæknilegt í eSli sínu, heldur öllu fremur siSferðilegt. Stofnunin vinnur ekki að framförum á sviði mennta, vísinda og menningarmála einungis framfaranna sjálfra vegna, hversu mikilsverðar sem þær annars kunna að vera, því að í ljósi þeirra ákvæða, sem 'felast í stofnskránni, eru þetta aðeins -tæki eða leiðir til að ná æðra markmiSi, friSi. Unesco var stofnaS í þeirri trú, að það sé maðurinn sjálfur, og það frelsi, sem hann áskapar sér, er endanlega ráði gangi sögunnar og velji milli stríðs og friðar, og þar af leiðandi geti ekki verið um neinn sannan frið að ræða nema mennirnir geti komiS sér saman um þá heimsmynd, sem hugur þeirra girnist og virðir, eða eins og segir í upphafi stofnskrár Unesco: Stjórnir þeirra ríkja, sem aðilar eru að þessari stofnskrá af hálfu þjóða sinna, lýsa yfir því: að úr því styrjaldir eiga sér upptök
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.