Andvari - 01.01.2002, Síða 23
ANDVARI
EINAR OLGEIRSSON
21
Höfn. Þeir félagarnir settu sig þá í samband við gamlan skólabróður
sinn úr menntaskólanum, Kristin Guðmundsson, sem var við hag-
fræðinám í Kiel, og lögðu til við hann, að þeir færu allir þrír til náms í
Berlín. Varð það að ráði. Vissu þeir, að ódýrt væri fyrir útlendinga að
lifa í Þýskalandi sökum stöðugt rýrnandi verðgildis þýska marksins.1)
Osigur Þjóðverja í heimsstyrjöldinni fyrri hafði skapað byltingar-
ástand í Þýskalandi.2) Keisarinn flúði land, en lýst var yfir stofnun
lýðveldis undir forystu sósíaldemókrata og miðflokkanna. í janúar
1919 freistuðu liðsmenn hins nýstofnaða Kommúnistaflokks þess að
gera byltingu í anda bolsévika. Forysta sósíaldemókrata gerði banda-
Hg við yfirstjórn hersins um að brjóta þessa byltingartilraun á bak
aftur. I þeim átökum voru leiðtogar kommúnista, þau Karl Liebknecht
°g Rósa Luxemburg, myrt á hrottafenginn hátt. Segja má, að eftir
þessa atburði hafi ekki gróið um heilt milli sósíaldemókrata og komm-
unista í Þýskalandi, fyrr en þá í fangabúðum Hitlers.
Weimarlýðveldið var formlega stofnað sumarið 1919. Það stóð þó
ekki styrkum fótum, enda stofnað í óþökk verulegs hluta þýsku þjóð-
arinnar og að því sótt frá hægri og vinstri. Ekki bætti úr skák bágborið
efnahagsástand og vaxandi verðbólga næstu árin ásamt stirðri sambúð
Vlð umheiminn vegna ágreinings um skaðabótagreiðslur Þjóðverja
eftir styrjöldina. Þó keyrði fyrst um þverbak eftir hemám Frakka og
^elga á Ruhrhéraði í ársbyrjun 1923 vegna meintra vanefnda Þjóð-
Verja á skaðabótagreiðslum. Stjórnvöld, atvinnurekendur og verka-
•^enn í héraðinu brugðust við með algerri samstarfssynjun við her-
námsliðið og til að fjármagna andófið þurfti að auka snúningshraða
Seðlaprentvélanna um allan helming. Af því leiddi algert gengishrun
Þýska marksins þegar leið á árið 1923. Óðaverðbólgan þurrkaði út
skuldir skuldakónganna, brenndi upp til agna sparifé iðjusamrar milli-
stéttar og kom þorra verkalýðs á vonarvöl. Margir sultu heilu hungri
°g dóu jafnvel úr næringarskorti.3) Af öllu þessu spratt nýtt byltingar-
ástand í landinu.
Hér að framan hefur verið brugðið upp mynd af þeim aðstæðum,
Sern hinir ungu íslensku námsmenn í Berlín gengu inn í og urðu hluti
ak Þarna voru að gerast heimssögulegir atburðir, sem þeir urðu vitni að
°g með nokkrum hætti þátttakendur í og gefur augaleið, að þessar
aðstæður hafa orkað sterkt á hugi þeirra.
Við komuna til Berlínar haustið 1921 leigðu þeir félagamir, Einar,
^kristinn og Stefán, sér gott herbergi og bjuggu þar saman fyrsta kastið.