Andvari - 01.01.1879, Qupperneq 39
Brjef frá Norvegi.
35
sem á leikhúsum. Stóð hann liðug'ar 2 kl. stunclir
cjg var hin bezta skemmtun. ] .eikararnir voru skóla-
stúlkur og fengu þær góðan orðstír fyrir frammistöðu
sina. fótti mjer slíkt bera vott um rausn þessafólks
(Vonens) að kosta til hans jafnframt veizlunni.
Af því svo stóð á slcipaferö, þurfti jeg einnig
að dvelja 2 daga hjá prestinum í Aslcevoldspresta-
kalli, er liggur við mynnið á Dalafirðinum. Hann
heitir Holm og hjá honurn undi jeg jafnvel hag min-
um og í Dölum. f>ar var jeg við messugjörð og sá
þar samankominn mikinn tjölda af bændafólki, því
veður var gott. Flestallir karlmenn voru algjört
klæddir vaðmálsfötum, en hið „stampaða“ vaðmál
Norðmanna er mjög áferðargott og failegt til að sjá.
119 af söfnuðinum voru til altaris, og' fór allur sá
hópur inn i kór áður innsetningarorðin voru tónuð
og stóð þar, en framúr kórnum aptur jafnótt ogút-
deilt var. Ekki var þar organ í kirlcju (í kirlcjunni
í Dölum var ,.harmoníum“ en litið og óásjálegt) en
milcið og vel var sungið bæði af körlum og konum.
Presturinn liafði guðræknisiðkanir á heimili
sínu. Á morgnana þegar morgunverður var á borð
borinn og sezt að borði, las hann „texta“ í húspost-
illu, þar á eptir einn kapitula úr ritningunni; síðan
lesturinn í húspostillunni, er elcki var langur. Stóð
hann því næst upp og las drottinlega bæn og bless-
unarorðin, og svo seinast einn kapitula úr ritning-
unni; var síðan matast með glaðværð og góðri lyst.
í?egar matast var um miðjan daginn og á kvöldin
var aðeins lotið fram, til að lesa stutta borðbæn
með sjálfum sjer af þeim, er til borðsins sátu (slíkt
er siður víðar, þar sem jeg liefi verið við borðhald í
Norvegi); en áður farið var að hátta á kvöldin, var
fiin sama guðsþjónustugjörð, eins og yfir borði á
morgnana, og þá sat þjónustufólkið inni á meðan