Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 27
MENNTAMÁL
153
fyrir framleiðslustörfunum, aðeins 6%, og aðeins 3% velja
sér húsmóðurhlutskiptið, og hygg ég að þetta tvennt sé éng-
in tilviljun. í fyrsta lagi vegna þess, að framleiðslustétt-
irnar hafa átt við óvenju mikla erfiðleika að stríða að und-
anförnu, og í öðru lagi af vaxandi flótta frá líkamlegri
vinnu.
Annars skal þess getið, að tilraun þessa gerði ég mér til
gamans, fremur en að ég byggist við nokkrum merkiiegum
niðurstöðum, og í sama tilgangi birti ég þetta hér.
En ef eitthvað skyldi nú vera á svona spurningum og
svörum að byggja til þess að sjá hvert hugir barnanna
hneigðust, þyrfti þessi eftirgrennslan að fara fram í marg-
falt víðari hring í sem flestum skólum landsins. Og gæti
þá verið fróðlegt að vita hvort nokkur rauður þráður fynd-
ist liggja þar í gegn, og hvert hann lægi.
Hannes J. Magnússon.
Stærðfræði
iii.
Allur þorri 7 ára barna, þeirra sem ég hefi kynnst, hefir
kunnað að telja upp yfir 20, og mörg kunna að telja yfir
100. Þau hafa flest kunnað að greina milli tveggja talna
(innan þeirra takmarka, sem þeim var kennt að telja að)
hver hærri væri, og mörg þeirra hafa verið nokkuð leikin
að reikna, einkum telpur. Hinsvegar hefir fjöldaskynjun
þeirra og gildismat, jafnvel lægstu talna, verið mjög ó-
glöggt, og eins stærðarmat hluta. Fæst þeirra hafa kunnað