Menntamál - 01.12.1939, Qupperneq 34

Menntamál - 01.12.1939, Qupperneq 34
160 MENNTAMÁL og ræður þar tækni hvers kennara, en í eðli sínu eiga þær allar að vera eins. Öll stærðfræðikennsla á að vera formföst og formfögur. Hún á að vera hlutbundin og afstæð, ekki sérstæð.*) Hún á að vera safnandi, ekki sundrandi. Hún á að vera lifandi, mjúk og sveigjanleg, ekki dauð og stirð. Ætti að gefa hugmynd um þetta allt með dæmum, væri það efni í stóra bók, en ekki stutta grein. Pormlegar stærðfræðiæfingar krefjast spenntrar athygli, og eru því allerfiðar. Þær ættu því ekki að vera lengi í hvert sinn, aðeins nokkrar mínútur. Ef viðlíka umfangsmiklar æfingar þeirri, sem ég tók hér að framan (talan 6), taka meiri tíma en 10—15 mín., er það vottur leiði eða þreytu, og slíkt ber vel að varast. Afgangi kennslustundarinnar — hvort sem það er fyrri hluti hennar eða hinn síðari, má verja til frjálsra samræðna um þau stærðfræðileg efni, sem börnin í þann svipinn hafa mestan áhuga á að leysa, helzt fersk viðfangsefni þeirra sjálfra. Þá er og gott að nota hina óþrotlegu löngun barnanna til að teikna. Láta 3 eða 4 börn teikna á töfluna alveg frjálst og fyrirmyndarlaust, en kenn- arinn og börnin fylgjast með því, sem teiknað er, og athuga það frá sem flestum hliðum. Séu börnin fá og á ólíku reki, getur og hvert þeirra teiknað á sitt blað, en kennarinn gengið á milli, athugað verkin og hjálpað til að vekja við- fangsefni. Hópmyndir og atburðamyndir eru hentastar til þessara hluta, en þó er bezt að efnisval barnanna sé í þeirra vitund frjálst. Enda þótt mörg börn séu all leikin að reikna, er þau koma í skóla, einkum þar sem skólaskylda hefst með 10 ára aldri, er þeim engu síður nauðsynlegt að æfa frumatriði stærð- fræðinnar skipulega og vel. Þau verða að skilja, að stœrð- frœðinámið er ekki utanaðnám ákveðinna frœðisetninga, heldur œfing í skipulagi umhverfis og atburða, og annars *) Þetta á við byrjunarkennslu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.