Menntamál - 01.12.1939, Page 36
162
MENNTAMÁL
börnin. Það er hentug handavinna, og með því móti fæst
æskileg fjölbreytni í formin).
Með venjulegum leikteningum má æfa samlagningu og
frádrátt, á margan hátt, og þannig mætti lengi telja.
Spil æfa fjöldaskynjan (1 til 10) og reikningsleikni.
Kassína æfir samlagningu. Mafías og Sextíu og sex sam-
lagningu og frádrátt, og er því skaði ef þau góðu og gömlu
spil týnast.
Bezta reikningsleikfangið, sem ég hefi notað, er þó reikn-
ingsspilin.*) Það eru lítil spil með. talnaröðunum 0—10;
10—100 og 100—1000, og svo helztu reikningsmerkjum.
Þessi spil geta æft allar greinar barnaskólareiknings, og
börnin hafa mjög gaman að þeim. Þau eru stokkuð, gefin
og slagir teknir, rétt eins og í öðrum spilum, en sá vinnur
jafnan, sem fljótari er og öruggari að reikna.
Getraunir margvíslegar eru og góð æfing, og 7—8 ára
börn hafa gaman að hinum léttustu þeirra: „Hve margar
eru árar á borði“ og öðrum slíkum.
Ég hefi fjölyrt um þessa leiki, vegna þess að þá má nota
miklu betur en almennt er gert.
Nú hefir Ríkisútgáfa námsbóka hafið útgáfu reiknings-
bókar, og er 1. hefti fyrir nokkru komið út. Það er ætlað 7
ára börnum.
Slíkrar bókar var mikil þörf, því að engin reikningsbók
var til fyrir byrjendur. Mun sá skortur hafa átt drjúgan þátt
í því hve mörg börn „luku einskonartölum!“ eða jafnvel
öllu skólanámi, svo að þau vissu ekki hve margir 3 og 4 eru
(3+4), nema þau teldu það.
Bókin flytur mörgum ýmislegt nýtt, og má kalla það
kosti hennar, umfram þær bækur, sem fyrir voru (og rang-
lega voru notaðar til byrjunarkennslu), þessir eru helztir:
*) Rechnenkarte „Pix-Fix“. Útg. O. Hofmann, Schmöller, Thtiringen.
Verð 35 Pf. Hverjum spilapakka fylgir kver, með allmörgum leikregl-
um, en þó má þar endalaust við bœta.