Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 38
164
MENNTAMÁL
leysi töluhugtaksins („idealisminn“ í stærðfræðikennsl-
unni) vera að verki, því að fáfræði um minni barna og
hugsanastarf verður varla um kennt.
Þetta er höfuðbrestur bókaiinnar, því að þótt kennara sé
innan handar að bæta úr þessu, má ekki vænta þess að
fjöldinn geri það, og síst þeir, sem helzt þurftu bókar-
innar með. Vaninn, að fylgja kennslubókunum nákvæmlega
er allt of ríkur til þess, að léleg kennslubók geti talizt not-
hæf, en ég hefi hér getið bókarinnar í þeirri von að þessar
athugasemdir mínar geti hjálpað einhverjum til að bæta
úr breztum hennar.
Stœrðfrœðikennsluna verður að byggja á traustum og
glögglega skynjuðum grunni.
Gestur O. Gestsson.
Unglingastarf Rauða krossins
Æskulýðsfélög af ýmsu tagi og með margvíslegum markmiðum hafa
verið stofnuð í þúsunda tali um heim allan undanfarandi áratugi.
Ungliðadeildir Rauða krossins munu hafa náð almennastri útbreiðslu
þeirra allra. Samkvæmt nýjustu skýrslum eru starfandi ca. 25 miljónir
barna og unglinga í U. R. K. í 40 löndum.
Starfsreglur U. R, K. eru mjög einfaldar, markmiðið hnitmiðað
og vekur óskiptan áhuga barnanna.
Starf U. R. K. er alls staðar unnið á vegum skólanna. Kennarar
stjórna því undir yfirstjórn Rauða krossins, sem lætur í té stuðning
og fjármuni, eftir því sem ástæður leyfa og þörf krefur.
Vinnan, sem kennarinn þarf að inna af hendi fyrir ungliðastarfið,
er hverfandi lítil. Hvarvetna hafa kennarar tekið félagsskapnum tveim
höndum, og þeir, sem hafa reynt ágæti hans, fá ekki nógsamlega lofað
árangurinn. Og því fer svo fjarri, að félagsstarfið tefji nám barnanna,
eða dragi áhugann frá því, eins og á sér stað um ýmsan félagsskap,
sem fer fram utan skólanna, heldur gefur það kennaranum kærkomið